Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því eins og aðrir hv. þingmenn að þakka kærlega fyrir þessa umræðu, bæði frummælanda og hæstv. ráðherra fyrir hans svör. Skilvirkari nýting auðlinda dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda, hægir á tapi líffræðilegrar fjölbreytni og dregur úr mengun. Hringrásarhagkerfið er nauðsynlegt í þróun í átt að nýtnara samfélagi, stuðlar að nýjum og fleiri störfum og er í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Mér heyrist nú, virðulegi forseti, að hér séum við flest á sömu línunni hér inni ef ekki bara öll og afskaplega jákvæð og ágæt umræða um málefni sem ekki öllum finnst spennandi. Íslenska hagkerfið einkennist af mikilli neyslu, sagði hv. þm. Rafn Helgason í jómfrúrræðu sinni. Hann bætti um betur og sagði, ef ég tók rétt eftir, að samkvæmt nýrri skýrslu færu um 8,5% af íslenska hagkerfinu aftur í hringrás. Þetta er auðvitað of lág tala miðað við það að við höfum ætlað okkur, m.a. með nýrri löggjöf eins og aðrir hv. þingmenn hafa komið inn á, að gera betur. Og við getum gert betur í að skapa lífvænlegt, heilbrigt og réttlátt samfélag með hringrásarhagkerfi sem nýtir allar auðlindir með sjálfbærum hætti og dregur úr myndun úrgangs, minnkar sóun, eykur endurnotkun, eins og margir hv. þingmenn hafa bent á með góðum hugmyndum, og endurvinnslu og dregur þar með stórlega úr urðun.
Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að fylgja nýrri úrgangsstefnu kröftuglega úr hlaði. Það hefur heilmikið verið gert í þessum málum á undanförnum árum en ég held að þessi umræða sem við eigum hér í dag og víðar í samfélaginu um breytingar á og ríkari kröfur til okkar sem látum frá okkur úrgang að miðla honum frekar í hringrásarhagkerfið sýni að gríðarleg tækifæri séu til að gera betur og ég hvet okkur öll til góðra verka.