154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:33]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka frummælanda, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir að opna þessa mikilvægu umræðu hér og hæstv. ráðherra Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans svör. Það er alveg ljóst að þessi mál eru á fleygiferð hjá okkur. Mörgum okkar þykir sennilega ekki nægilega hratt ganga en það er þá okkar allra að vera samstiga í því að ná árangri sem fyrst. Það er ekki annað að heyra en að við séum öll sammála um það að efniviður á að vera hluti af stöðugri hringrás þar sem vörum og efni er haldið í notkun með endurnýtingu, endurvinnslu, viðgerðum og endursölu. Við viljum draga markvisst úr myndun úrgangs og varpa skýrara ljósi á gildi hans sem verðmæts hráefnis fyrir nýja vöru. Það er líka ljóst að bann við urðun lífræns úrgangs skapar tækifæri til nýsköpunar, fyrir frumkvöðlastarf og fyrir græn störf þar sem stjórnvöld geta stutt við framleiðsluferla sem halda efni og orku í hringrásarhagkerfinu, m.a. með bættum skilakerfum og úrvinnslugjöldum. Við þurfum að halda áfram að leggja áherslu á að flokkaður úrgangur verði að nýjum vörum og styðja við græna nýsköpun í endurvinnslu. En samhliða þessu þurfum við síðan efnahagslega hvata sem styðja við deilihagkerfið. Ég tel að einkarekstur og fjölbreytt rekstrarform þegar kemur að sorpmálum geti skipt miklu máli. Efla þarf samkeppni í greininni og skoða samstarf opinberra aðila og einkaaðila þegar kemur að förgun sorps. Síðan skipta rekjanleg kolefnisspor vöru máli í því að aðstoða neytendur við að taka upplýstar ákvarðanir um val, t.d. með tilliti til loftslagsáhrifa hennar. Þannig getum við stigið stórt skref í að draga úr neysludrifinni losun, m.a. með því að mynda þannig hvata fyrir framleiðendur.

Síðan langar mig að ljúka máli mínu hér á því að ræða mengunarbótaregluna, það sem félagi minn, hv. þm. Rafn Helgason, nefndi áðan sem grunnstefið, þ.e. að þeir sem menga axli ábyrgð og greiði gjald í samræmi við umfang og eðli losunar sem þeir valda. Það er þannig (Forseti hringir.) sem við sköpum hvatana til að draga úr sóun og nýta betur það sem er framleitt. Þetta hlýtur að vera grunnstefið af því að þarna ná saman einkaaðilar og stjórnvöld.