154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Guði sé lof fyrir seinni ræðu. Nei, ég er ekki að leggja til Ríkisrusl ohf. og ekki heldur Rusl hf. sem væri í eigu ríkisins. En ég hef oft sagt það við sveitarfélögin, sem m.a. kveinka sér undan málefnum fatlaðra sem augljóslega er nærþjónusta, að þetta væri kannski málaflokkur sem þau gætu skilað aftur til ríkisins. Með því er ég ekki að segja að það eigi að opna ríkisfyrirtæki til að halda utan um þetta. En ótti minn snýr að því að ég óttast að við höfum ekki góða heildarsýn á úrvinnslumálin okkar þar sem verkefnin eru á herðum sveitarfélaga og því miður, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í áratugi, þá hafa sveitarfélögin ekki komið sér saman um fullkomnar lausnir í þessum málum. Jafnvel stærstu og öflugustu sveitarfélögin á landinu, á höfuðborgarsvæðinu, hafa þurft að berjast í bökkum við að opna eitt stykki gas- og jarðgerðarstöð með algjöru klúðri, þótt gas-og jarðgerðarstöðin virki fínt í dag og sé að færa okkur miklar bætur hvað kolefnissporið varðar. Ég segi þetta kannski líka vegna þess að við sáum ágætisdæmi þegar upp kom riða á bæ í Húnaþingi vestra. Á einni nóttu varð það allt í einu verkefni sveitarstjóra, reyndar alveg frábærs sveitarstjóra, með 1.250 manna sveitarfélag sem er venjulega að fást við leikskólamál og grunnskólamál og dreifbýlið sitt og eitthvað svona, allt í einu var það orðið hennar vandamál að finna út úr því hvernig átti að urða 70 tonn af dauðum kindum, sem átti að vera sýktur úrgangur, leita allra leiða til þess.

Ég held að við þurfum stærri umgjörð utan um þetta og ég held að ríkisvaldið þurfi að stíga þar inn og sjá til þess að það verði einmitt til aukin tækifæri í þessu. Það þarf nefnilega að búa til hvata, hvort sem það er í gegnum Úrvinnslusjóð eða önnur kerfi okkar. Það eru nefnilega verðmæti í ruslinu okkar, alveg eins og hefur komið svo vel fram hérna í dag. Við þurfum að gera atvinnulífinu kleift að finna umhverfisvænar og hagkvæmar lausnir til að endurnýta sorpið okkar. Svo þakka ég þessa góðu umræðu.