Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum, bæði málshefjanda og öðrum sem tóku þátt í umræðunni, hún var mjög góð. Ég veit ekki, þetta með holræsatilskipunina og hvernig það mál barst inn í þingnefndir. Ástæðan fyrir því að þetta er þarna er vegna þess að ég sendi það þarna inn. Ég hef áhyggjur af þessu máli og ég er ekki tilbúinn að samþykkja þetta. Ég vil að allir leggist þar á eitt, bæði hv. þingmenn sem og þeir sem gæta hagsmuna okkar, hvort sem það er utanríkisþjónustan eða aðrir, vegna þess að þetta gengur ekki upp. Ég myndi gjarnan vilja fá að ræða málið við hv. þingnefndir, bæði umhverfisnefnd og utanríkismálanefnd, vegna þess að það er gríðarlega alvarlegt. Það sér hver maður að þetta getur ekki gengið upp. Alveg á sama hátt og ég neitaði því sem hæstv. utanríkisráðherra að samþykkja nýju innstæðutilskipunina þá segi ég að þetta sé á sama stað. Þetta eru slíkar upphæðir. Ég vona að hv. þingmenn séu með það á hreinu. Þess vegna vita hv. þingmenn um þetta, það er vegna þess að ég sendi þetta þarna inn út af alvöru málsins og ég vildi gjarnan fá að ræða þetta við hv. þingmenn.
Við þurfum að ræða þessi mál líka með Úrvinnslusjóð. Það er verið að vinna eftir tillögum hins góða manns, Halldórs Árnasonar, sem stýrði hópi um það.
Varðandi sorpbrennsluna þá er hreyfing á því máli, eins og ég fór yfir í minni ræðu. Ég hvet okkur bara til þess að ræða um þetta. Ég get komið fyrir hv. þingnefnd og hér í þingsal vegna þess að hér er margt sem við þurfum að ræða og umræðan var mjög góð. Í lokin vildi ég bara benda hins vegar á það, sem svona eitthvað jákvætt, að hér á höfuðborgarsvæðinu benda tölur til þess að nú fari um 65–75% af lífúrgangi sem áður fór í gráu tunnuna, í réttan farveg í brúnu tunnuna. Þetta er mjög góður árangur strax á fyrsta ári sérstakrar söfnunar og gott að hafa í huga að lífúrgangur er að jafnaði helmingur af öllum heimilisúrgangi.
Við náum ekki að tæma þetta hér, sem er kannski ágætt. En aðalatriðið er þetta: Ég er mjög ánægður með þessa umræðu og þakka öllum hv. þingmönnum sem tóku þátt í henni, hún var uppbyggileg, jákvæð og öllum til sóma.