154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

gervigreind.

648. mál
[16:43]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Létt og lipur fyrirspurn sem ég sendi til allra ráðherra og forseta þingsins því að þróunin á gervigreind á undanförnum mánuðum — þannig mætti enn þá telja því að ef við værum að tala um barn værum við enn þá að segja hversu gamalt það væri í mánuðum — er það mikil að við verðum að veita því athygli. Tækifærin sem þessi tækniþróun býður upp á á öllum sviðum stjórnsýslu og öllum vettvangi hins mannlega lífs eru dálítið, það mætti nota orðið stjarnfræðileg. Möguleikarnir sem eru til staðar eru stjarnfræðilegir en það eru áhætturnar líka. Því þurfum við að vinna mjög markvisst að því að nýta þessa tækniþróun okkur öllum til góðs. Því hef ég lagt þá hugleiðingu inn til ríkisstjórnarinnar — þótt ég spyrji hér hvort ráðherra hafi látið gera úttekt giska ég á að það hafi ekki endilega mikið verið gert en kannski núna eftir að fyrirspurnin var send. Þetta er ákveðin hvatning mín til að ráðherrar nýti það tækifæri í svörum við þessari fyrirspurn að gera alla vega grundvallarúttekt á því hvaða tækifæri væri hægt að nýta á næstunni og kannski renni bara í gírinn og stígi skrefið strax.

Annars vegar: Hver eru tækifærin? Og hins vegar: Hverjar eru áskoranirnar? Nú er ég að spyrja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hlakka til að heyra hans svör.