gervigreind.
Forseti. Já, það er nú þannig að áskoranirnar eru dálítið óumflýjanlegar, þ.e. tæknin og tækniþróunin er óumflýjanleg og afleiðingarnar af þeirri tækniþróun líka. En við getum í rauninni lært á afleiðingarnar sem slíkar. Það er held ég áskorun okkar á næstu árum og áratugum, að læra á það hvernig þessi tækni kemur til með að breyta því hvernig við sinnum öllu; hagkerfinu, mannlegum samskiptum og öllu. Já, það er rétt hjá hæstv. ráðherra, að sjálfsögðu höfum við tekið okkur gervigreindina á hendur í þingflokki Pírata. Ég var t.d. að setja út nýja vefsíðu hjá mér þar sem ég þýði greinar sem ég skrifa sjálfkrafa yfir á önnur tungumál — eða sjálfkrafa, það er smáhandavinna í því líka. Ég er ekki búinn að setja upp forritunaraðganginn þannig að það gerist sjálfkrafa, kóðinn er tilbúinn en ekki — alla vega, skiptir ekki máli.
Það er svo margt í þessu sem er hægt að gera. Lögfræðingar t.d. og dómarar eru farnir að nota þetta sem aðstoðartæki til að passa upp á að þeir gleymi ekki einhverju. Læknar hafa getað notað þetta til að greina krabbamein á miklu áhrifaríkari hátt heldur en áður var hægt. Þetta er svona einhvern veginn þriðja augað fyrir fólk til að gæta að því að það sé ekki eitthvað sem stjórnsýslan gleymi. Ég hvet ráðherra til að setja upp teymi eða eitthvað svoleiðis í ráðuneyti sínu til að skoða hvernig er hægt að nýta gervigreindina í daglegu starfi, þó ekki væri nema til að þýða skjöl sem ráðuneytið gefur út yfir á önnur tungumál.