154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

náttúruminjaskrá.

716. mál
[17:16]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Mig langar kannski aðeins að byrja á því að þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að forvitnast um stöðuna á vinnunni við náttúruminjaskrá sem er afar mikilvægt tæki í að ná fram markmiðum eins og hv. þingmaður fór yfir í fyrirspurn sinni. Mig langar samt sem áður að koma því á framfæri að þó svo að lögin kveði á um að hér skulum við vinna eftir náttúruminjaskrá, sem er lögð fram eigi sjaldnar en á fimm ára fresti, þá er ekkert því til fyrirstöðu að ráðast í friðlýsingar svæða, m.a. með grundvöll í þeirri vísindaþekkingu sem við búum yfir, með útgáfu á vistgerðarkortum og jarðfræðilegum minjum og öðru slíku sem Náttúrufræðistofnun býr fyrst og fremst yfir.

Mig langar að spyrja, ef ég nota tækifærið, hæstv. ráðherra svona í ljósi hægagangs náttúruminjaskrárinnar, og ég lýsi líka yfir vonbrigðum mínum með þann litla fjölda svæða sem birtist nú í kynningu Umhverfisstofnunar, hvort hann (Forseti hringir.) sjái fyrir sér að hægt sé að spýta í og/eða vinna eftir öðrum ákvæðum löggjafarinnar með frekari friðlýsingu svæða þó að þau séu ekki endilega útgefin í náttúruminjaskrá.