náttúruminjaskrá.
Frú forseti. Við þekkjum það ágætlega úr þessum þingsal að það er fátt sem hæstv. ráðherra er verr við en kyrrstaða. En kyrrstaða er það sem ríkir í náttúruverndarmálum þessi árin. Það mætti segja að það sé verndarstopp. Allt ferlið í kringum framkvæmdaáætlun bendir til þess. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um það sem ég lauk á að nefna í fyrri spurningu minni: Í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur undirgengist alþjóðlegar skuldbindingar — hún er búin að segja að á Íslandi verði 30% landsvæðis friðlýst árið 2030 — og með hliðsjón af því að sú tala er 20% í dag, hvernig ætlar hæstv. ráðherra að ná að brúa bilið til þess að standast það sem fulltrúar hæstv. ráðherra undirgengust á alþjóðavísu á síðasta ári, það er ekki lengra síðan?