154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

sólmyrkvi.

603. mál
[17:29]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa áhugaverðu umræðu því að ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Ég heyri það á svörum hæstv. ráðherra, og kemur mér raunar ekkert á óvart, að Umhverfisstofnun, sem fer með umsjón svæðisins á Bjargtöngum og Látrabjargi, er að sjálfsögðu farin að huga að þessu máli. En mig langar samt sem áður að forvitnast um eitt, af því að hv. þm. Bergþór Ólason gerir veginn að umtalsefni og ferðamannavegi — og ég get að hluta til tekið undir það sem hv. þingmaður er að segja, að við höfum kannski ekki hugað nægilega að mikilvægi þeirra. Hér er spurt: Hvaða aðgerðir sér ráðherra fyrir sér að ráðast í vegna væntrar komu ferðamanna vegna þessa almyrkva á sólu þann 12. ágúst 2026 á Látrabjargi? Mig langar út frá þessu að spyrja hvort ráðherra sjái fyrir sér að ein aðgerðin geti hreinlega verið að takmarka aðgengið, að það sé bara ákveðinn hópur fólks sem kemst að vegna þess að ekki er hægt að byggja upp alla vegi og ekki alla göngustíga og ekki hægt að sinna þessu með endalausum (Forseti hringir.) fjölda landvarða þó að ríkur vilji sé til. En þar þarf auðvitað að huga að almannarétti eins og við þekkjum.