sólmyrkvi.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra góð svör og gott að heyra að Umhverfisstofnun ætli að huga að uppbyggingu þeirra innviða sem þurfa að vera varanlega til staðar á Látrabjargi en líka hvort það sé kannski ástæða til þess að vera með einhverja tímabundna þjónustu til að taka á þeim kúfi sem er mjög líklegt að verði þarna í kringum almyrkvann. Ég tek undir með hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni að auðvitað þurfum við að skoða þetta allt saman í einhverju samhengi út frá því hvað svæðið ber þannig að það er gott að þetta samtal sé í gangi hjá sérfræðingum Umhverfisstofnunar. Þar langar mig að hvetja hæstv. ráðherra til þess að beina því samtali inn í innviðaráðuneytið vegna þess að ég átti sambærilegan orðastað við þann hæstv. ráðherra hér fyrir nokkrum vikum og kom að algjörlega tómum kofanum, verð ég að segja, því miður. Staðreyndin er nefnilega sú að á samgönguáætlun fyrir, að mig minnir, síðasta eða þarsíðasta ár, var gert ráð fyrir að ráðstafa fjármunum í uppbyggingu vegarins út að Látrabjargi því hann þarf svo sannarlega að byggja upp. Sá peningur nýttist hins vegar ekki í það heldur var færður í aðrar framkvæmdir á svæðinu engum til gleði. Ráðherra kom hingað og lét eins og þetta kæmi honum varla við og þingið gæti ráðstafað peningum í veginn út á Látrabjarg ef þingið langaði til og hann myndi bara taka því fagnandi og reyna að spreða þeim peningum eins og okkur lysti. Ég skynjaði ekki mikla alvöru hjá hæstv. innviðaráðherra gagnvart því verkefni að tryggja aðgengi að Látrabjargi til frambúðar á þann hátt sem sómi er að. En ég treysti því, í ljósi þess hversu vel hæstv. umhverfisráðherra tók í þessa fyrirspurn, að það samtal á milli ráðherranna muni leiða eitthvað betra í ljós.