154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

umhverfisþing.

714. mál
[17:35]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Það eru nokkrar uppskeruhátíðir sem maður getur sótt ef maður hefur áhuga á umhverfismálum, náttúruvernd, loftslagsmálum. Ein þeirra er umhverfisþing þar sem safnað er saman þeim sem hafa mest um umhverfis- og náttúruvernd og sjálfbæra þróun að segja, mestan áhuga, mest fram að færa. Þarna er hrært saman alþingismönnum, fólki frá ríki og sveitarfélögum, atvinnulífi, frjálsum félagasamtökum. Þetta eru skemmtilegir fundir og þetta eru lögbundnir fundir. Þetta eru fundir sem samkvæmt lögum um náttúruvernd á að halda að loknum hverjum alþingiskosningum og síðan tveimur árum síðar. Síðast var umhverfisþing haldið fyrir kosningarnar 2021. Þær kosningar eru liðnar án þess að umhverfisþing hafi verið haldið og síðan eru liðin þrjú ár án þess að umhverfisþing hafi verið haldið. Mig langar því einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra hver sé ástæða þess að hann er kominn yfir fresti varðandi boðun umhverfisþings á tvennan ólíkan hátt. Hann er bara að þverbrjóta lögin hér að öllu mögulegu leyti.