gervigreind.
Forseti. Einföld og létt fyrirspurn þegar allt kemur til alls. Það er ákveðin tæknibylting í gangi sem við, að gefinni reynslu, ættum að gefa gaum fyrr en síðar. Hæstv. ráðherra hefur í fyrra hlutverki kallað eftir því að við þyrftum að verða Ísland 2,0. Það var svona um síðustu aldamót sem við hefðum þurft að vera komin þangað. Núna erum við að glíma við næstu risatæknibyltingu og því fyrr sem við hagnýtum okkur þessa tækni í opinberri stjórnsýslu og á öllum vettvangi hins opinbera, því betra væri það. Því spyr ég ráðherra hvort einhver skoðun sé hafin þar á í lögbundnum verkefnum ráðherra og hjá stofnunum á hans ábyrgð, og svo almennt hver tækifærin eru á málefnasviðum ráðherra og hjá stofnunum hans. Hverjar eru svo helstu áskoranir sem fylgja notkun gervigreindar á málefnasviðum ráðherra og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?