gervigreind.
Forseti. Það væri bara óskandi, enda er tilgangurinn með fyrirspurnunum mínum oft að benda á að svörin eru ekki aðgengileg frá stjórnsýslunni, sem er kaldhæðnislegt þegar allt kemur til alls. Ég er að sjá rosalega margt gerast í tækniþróun hins opinbera núna sem ég var í rauninni að vinna að á vettvangi hugbúnaðarþróunar fyrir 10–15 árum síðan. Það eru áhyggjurnar sem ég hef, að við séum ekki að dýfa okkur dálítið í djúpu laugina núna heldur séum einhvern veginn eftir 10–15 ár loksins að kveikja á perunni um að það sé ýmislegt sem við getum gert með þetta. En samfélagið er að færast hraðar og vonandi gerist þetta hraðar heldur en á 10–15 árum, vonandi í mesta lagi á fimm árum en það verður held ég of seint líka.
Hæstv. ráðherra minntist á alþjóðasamstarfið. Ég var einmitt í Evrópuráðinu í fyrra þegar var verið að samþykkja ályktun ráðsins um, með leyfi forseta, „lethal automated weapon systems“, eða lífshættuleg vopnakerfi, þar sem verið var að setja ákveðin viðmið um það hvernig mætti þjálfa í rauninni vélmenni með byssur og hvaða takmörkunum það væri háð. Þegar allt kom til alls — breytingartillögum mínum var hafnað, því miður — var staðan einfaldlega þannig að stærstu ríkin, eiginlega öll ríki en aðallega stærstu ríkin sem hafa getuna til þess að þjálfa róbóta með byssur geta gert það á þann hátt að róbótar geta drepið fólk með þeim byssum án þess að mannleg hönd komi þar nærri. Það er krafa um það að einhver mannleg vera geti ýtt á stopptakka, það er nokkurn veginn eina takmarkið. Áskoranirnar eru því til staðar og við þurfum að vera vel vakandi.