154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

gervigreind.

645. mál
[17:54]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir að það eru hættur til staðar. Ef maður leyfir sér að fara aðeins út í almennari umræðu er sömuleiðis hætta á því að notkun á gervigreind byggist upp á fölskum forsendum eða á ranghugmyndum um það að gervigreindin sé með einhverjum hætti alvitur þannig að svarið sé alltaf rétt sem gervigreindin skilar, en það er eðli málsins samkvæmt alltaf háð því að menn hafi sótt í grunn sem er trúverðugur og traustur og að getan sé til staðar til að greina upplýsingarnar sem eru undirliggjandi.

Mér finnst þetta vera spennandi vettvangur. Ég sat fund í morgun í ráðuneytinu þar sem var verið að ræða þessi mál í öðru samhengi, nefnilega í samhengi við leitina að lausn á mænuskaða. Eins og við þekkjum hafa frumkvöðlar á Íslandi verið að vinna í sjálfboðaliðavinnu við að efna til samstarfs, alþjóðlegs samstarfs um að komið verði á fót einhvers konar gagnagrunni þar sem allar rannsóknir og öll vísindi á því sviðinu verði til staðar fyrir alla þá sem eru að leita svara og lausna. Ef maður ber það saman við að búa til einhvers konar alheimsbókasafn einhvers staðar með öllum skýrslum og ritgerðum sem hafa verið skrifaðar og öllum niðurstöðum rannsókna þá erum við auðvitað að taka risastökk inn í framtíðina með því að geta nýtt gervigreindina til að skanna allar slíkar skýrslur og erum bara komin í allt aðrar og betri aðstæður til þess að framkvæma þær hugmyndir sem þar hafa verið undir. (Forseti hringir.) Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á tækifærunum en um leið hættunum sem þessu fylgja. Ég held að við þurfum að hafa vökult auga fyrir hvoru tveggja.