gervigreind.
Forseti. Ég ætla að gera ráð fyrir því að formálinn sé orðinn þekktur. Tækniframfarir eru miklar og við þurfum að grípa tækifærið fyrr en síðar svo að við séum ekki tekin í bólinu með slæma innleiðingu á nýjum tækniframförum eins og við höfum gert áður, eins og staðan er eiginlega núna. Það er rétt verið að ná upp ákveðinni tækniskuld. Ég spyr einfaldlega hvort ráðherra hafi látið gera úttekt á því og hvort byrjað sé að skoða hver tækifærin eru til að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð og hvar tækifærin og áskoranirnar þar eru.