154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

gervigreind.

652. mál
[18:14]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Verkefnin sem hæstv. ráðherra lýsir eru kannski aðgengilegustu dæmin um notkun á gervigreind. Mig langar til þess að það sé kafað dýpra. Mörgum af þeim fyrirspurnum sem ég spyr hér á þingi gæti spjallmenni ekki svarað af því það er ákveðin krafa í rauninni um aðgengi að gögnum þar á bak við. Ef spjallmenni er ekki með aðgengi að gögnunum, alveg eins og ég hef ekki aðgengi að gögnunum, þá getur það ekki svarað spurningum mínum. Ef aðgengi að gögnum yrði lagað til að byrja með þá væri hægt að nýta gögnin, óháð því hvort það sé notuð gervigreind eða ekki til að greina þau, enda er t.d. mikil svona Microsoft Power BI innleiðing í gangi á Stjórnarráðsvefnum þessa dagana, endalaus mælaborð með greiningum í gegnum það tól frá Microsoft. Það er bara eitt sjónarhorn á þau gögn sem þar liggja á bak við og það er yfirleitt sjónarhorn stjórnvalda þegar allt kemur til alls. Gögnin þar á bak við er eitthvað sem er svo nauðsynlegt að geta rýnt til að vera viss um að framsetningin sé rétt. Tækifærin eru mjög mörg og ég myndi vilja benda hæstv. ráðherra t.d. á að prófa gervigreindina í villuskoðun á lagafrumvörpum og þvíumlíku, það væri, held ég, mjög áhugavert. Við erum að fara að prófa okkur áfram með það hérna í þinginu að nýta slíkt.