gervigreind.
Hæstv. forseti. Þetta eru gagnlegar umræður. Ég tek algjörlega undir með hv. þingmanni að aðgengi að gögnum er eitthvað sem skiptir hér lykilmáli og líka, líkt og ég kom aðeins inn á í fyrri ræðu, betra flæði gagna á milli þó ekki væri nú nema stofnana sama ráðuneytis og inn til ráðuneytanna. Þetta rak ég mig sérstaklega eftir að ég kom í félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. Það var mismunandi eftir stofnunum hversu gott flæðið var inn til ráðuneytisins þannig að í tilfelli sumra stofnana var kannski hægt að nálgast í rauninni upplýsingar í rauntíma. Það var hlaðið upp daglega, í einhverjum tilfellum vikulega. Í öðrum tilfellum hefur þurft að leita alltaf sérstaklega til viðkomandi stofnunar til að fá gögn. Þannig að þarna eru klárlega tækifæri til að gera betur og við höfum verið að reyna að auka þetta flæði í ráðuneytinu hjá mér. Svo held ég að ég myndi fagna þessari tillögu hv. þingmanns um villuskoðun lagafrumvarpa því að sjálfur er ég mjög nákvæmur maður og les frumvörpin yfirleitt vel yfir áður en þau fara frá mér og ég sé ekki fram á annað en að það myndi spara mér sjálfum tíma.