mat á menntun innflytjenda.
Virðulegi forseti. Í lok janúar átti ég orðastað við hæstv. ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma um mat á menntun innflytjenda. Nokkrum dögum eftir það samtal opnaði þjónustugátt fyrir mat á námi og starfsréttindum á Ísland.is. Vinna við þjónustugáttina hefur verið leidd af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu í samstarfi við Stafrænt Ísland og ENIC/NARIC-skrifstofu Háskóla Íslands og fleiri lykilaðila sem koma að mati á námi.
Tilgangurinn með matinu getur verið margþættur, svo sem vegna innskráningar í skóla, vegna viðurkenningar á námi, vegna launaröðunar, veitingu starfsréttinda sem skilyrðis fyrir því að starfa í tiltekinni fagstétt og fleira. Með þjónustugáttinni er verið að tengja umsækjendur í gegnum miðlæga síðu við alla þá sem koma að mati og viðurkenningu á námi og starfsréttindum hér á landi. Þannig batnar aðgengi fólks sem vill fá menntun frá útlöndum metna, óháð því hvort um er að ræða innflytjendur eða innfædda. Hér er um að ræða mjög mikilvægt skref til einföldunar. Loksins er hægt að sækja um og sjá á einum stað allar upplýsingar um kröfur sem gerðar eru til umsókna um viðurkenningu á menntun eða færni.
Gáttin er mikilvæg en er bara eitt skref til bætts verklags og aukinnar skilvirkni því að eðli máls samkvæmt þarf fjöldi fólks að koma að mati á ólíku námi og starfsréttindum. Mikilvægt er að fólk með sérþekkingu komi að matinu og að hvergi sé slegið af kröfum til að sinna veigamiklum störfum í samfélaginu, hvort sem það snýr að byggingu húsa eða aðgerðum á sjúkrahúsum. Með þjónustugáttinni er verið að tengja umsækjendur við fólkið sem þarf að koma að matinu. Það er ekki nóg að tengja fólk saman heldur þarf fólkið sem vinnur að matinu og hefur það hlutverk að vinna úr umsóknum sem koma í gegnum gáttina að tryggja að þar séu til staðar verkferlar þannig að sú vinna gangi greiðlega fyrir sig.
Til þess að fá fram hvernig þeir ferlar eru og mismunandi hlutverk hef ég lagt fram fyrirspurn til fjögurra ráðherra varðandi mat á námi frá útlöndum, þ.e. til heilbrigðisráðherra, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Og hér velti ég fyrir mér hlutverki framhaldsfræðslunnar sem starfar á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Þá er spurningin hvaða stofnanir á málefnasviði ráðuneytisins koma að mati á menntun innflytjenda og hverjar skyldur framhaldsfræðslunnar eru varðandi mat á menntun innflytjenda.