154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

mat á menntun innflytjenda.

729. mál
[18:27]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að taka undir mikilvægi þessa málefnis. Við erum oft að missa af mikilvægri menntun og reynslu þess góða fólks sem kemur hingað til lands til þess að auðga okkar mannlíf og samfélag. Framhaldsfræðslustofnanirnar hafa verið duglegir við að taka þessa hópa og stýra þeim í réttan farveg á margan hátt og ég held að það sé mjög mikilvægt að byggja undir þeirra starfsemi hvað þetta varðar svo hægt sé að ná sem best til þessa fólks og ná því besta fram fyrir okkar samfélag.