154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

reglubundin skimun fyrir krabbameini í ristli.

721. mál
[18:48]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S):

Frú forseti. Marsmánuður er ætlaður til að vekja almenning á alþjóðavísu til vitundar um ristil- og endaþarmskrabbamein. Mottumars er svo árlegt átak Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini í körlum sem vekur alltaf mikla athygli. Það er því viðeigandi að taka þessa umræðu hér í marsmánuði. Nýgengi ristilkrabbameins hefur tvöfaldast á síðustu 60 árum og hefur nú tekið fram úr lungnakrabbameini sem næstalgengasta tegund krabbameins á Íslandi. Árlega greinast um 200 manns með ristilkrabbamein hér á landi og um 60 manns látast árlega vegna sjúkdómsins.

Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda hefur ítrekað dregist að hefja skipulagða skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi. Skipulögð hópleit eða skimun þýðir að öllum þegnum þjóðfélagsins á ákveðnu aldursbili er boðið að taka þátt í leit að krabbameini. Rannsóknir hafa sýnt að með skipulagðri leit að ristilkrabbameini og forstigi þess hjá einkennalausum einstaklingum 50 ára og eldri er hægt að lækka dánartíðni af völdum sjúkdómsins verulega.

Mikilvægt er að fara yfir forsögu málsins en það má rekja aftur til 2002 hér á Alþingi en hefur þó lengur verið til umfjöllunar hjá heilbrigðisyfirvöldum. Árið 2002 var samþykkt á Alþingi þingsályktunartillaga þingmanns um skimun fyrir ristilkrabbameini. Úr því varð ekki en málið var aftur tekið upp og þingsályktunartillaga var samþykkt árið 2007 og átti þáverandi heilbrigðisráðherra að undirbúa skimun sem hefjast átti árið 2008. Í krabbameinsáætlun sem framlengd var til 2030 kemur fram að skimun hafi átt að hefjast 2017. Ég rakst svo á frétt frá árinu 2022 þar sem sagt var að skimun myndi hefjast í upphafi 2023. Það var í fyrra og enn er skimun ekki hafin. Undirbúningur skimunar fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi hefur því verið í fullum gangi yfir tvo áratugi.

Eftir því sem ég veit er til tillaga frá skimunarráði um hópleit á ristilkrabbameini og ég átta mig á því að hér er í mörg horn að líta. Fara þarf eftir ráðlögðum skimunarleiðbeiningum sérfræðinga og uppfylla þarf skilgreind gæðaviðmið og sömuleiðis verður auðvitað að tryggja að tæknilegir innviðir séu til staðar. Þá þarf einnig að undirbúa alla framkvæmdaferla, semja við þjónustuveitendur og tryggja fjármagn til framkvæmdarinnar sem Alþingi ákveður með fjárlögum. En ég veit ekki til þess að framkvæmdin hafi staðið á Alþingi sem hefur í reynd tvívegis samþykkt þingsályktunartillögu til að reyna að hrinda af stað þessari framkvæmd. Þetta er náttúrlega búið að taka allt of langan tíma miðað við hvað það er búið að undirbúa þetta mikið og miðað við þær ákvarðanir sem hljóta að hafa verið teknar á þessum tíma.

Ég vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Er unnið að því í ráðuneytinu að hefja reglubundna skimun fyrir krabbameini í ristli? Ef svo er, hvernig miðar þeirri vinnu? Hvenær áætlar ráðherra að reglubundin skimun fyrir krabbameini í ristli geti hafist?