154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

reglubundin skimun fyrir krabbameini í ristli.

721. mál
[19:00]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil bara ítreka þakkir til hv. þingmanns fyrir að taka þessi mál upp. Þau eru brýn, þau eru mikilvæg, þau eru nauðsynleg og undirbúningur að því að hefja skimun er í fullum gangi, ég get alveg fullyrt það hér. Það eru allir að róa í sömu átt, að því að hefja skimun. Það er slæmt fyrir alla að geta ekki hafið skimun og við höfum róið að því öllum árum, með öllum okkar stofnunum sem koma að verkefninu, að geta hafið skimun. Ég get síðan bætt því við, og tek undir með hv. þingmanni, að þátttaka í skimunum, og hv. þingmaður nefnir hér þátttöku kvenna í brjóstaskimun, er brýn og mikilvæg og það er akkur okkar allra að auka og efla þá þátttöku. Það gildir um þá skimun eins og þessa sem við erum að hefja.

Hv. þingmaður nefnir hér langan undirbúning og fór alveg aftur til ársins 2002. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að auðvitað hefði verið æskilegt að byrja þetta miklu fyrr og þetta hefur verið tekið upp hjá öllum Norðurlandaþjóðunum, svona að mestu í Svíþjóð líka. En árið 2020 lagði fagráð skimunarráðs landlæknis til að skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi myndi hefjast sem fyrst og þá á þessu aldursbili sem yrði boðin þátttaka. Ég held að við séum alveg komin á þann stað núna að það hilli undir þetta. Hefðum við átt að byrja fyrr? Já, ég get alveg tekið undir það.

Ég vil bara að lokum segja að samhliða þessum mikilvægu verkefnum þá stendur nú yfir vinna við mótun nýrrar krabbameinsáætlunar til næstu fimm ára (Forseti hringir.) og þar er mjög mikilvægt að við grípum allar þær skimanir (Forseti hringir.) sem skipta okkur svo miklu máli, lýðgrundaðar skimanir, eins og hv. þingmaður fór yfir.