154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

gervigreind.

655. mál
[19:02]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Þetta er einstaklega áhugaverður málaflokkur, gervigreindin, hjá dómsmálaráðherra, enda eru tækifæri til að fara ekkert rosalega vel með gervigreindina í þeim málaflokki, t.d. hjá lögreglu en mikið hefur verið fjallað um möguleika þess að nota gervigreind við rauntímaskoðun á eftirlitsmyndavélum í löggæslutilgangi svo að dæmi sé nefnt. Sem betur fer hefur verið lokað fyrir það en það er ýmislegt annað sem liggur þar að baki, möguleikar sem eru mjög varhugaverðir, stórar áskoranir hvað það varðar. Einnig eru áskoranir í dómskerfinu en dómarar hafa notað gervigreindina til að skoða málin sem þeir eru að fara að dæma í og láta gervigreindina meta niðurstöðu mála. Það er því margt sem er mögulegt til að bæta réttarstöðu fólks, flýta fyrir í dómskerfinu og ýmislegt svoleiðis sem gervigreindin gæti gert mögulegt.

Ég spyr ráðherra einfaldlega, eins og aðra ráðherra hér, hvort hún hafi látið gera úttekt með einhverjum hætti á því hvernig hægt væri að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð. Þá er ég ekkert að tala um formlega úttekt. Margir ráðherrar hafa komið hingað og sagt: Nei, ég hef ekki látið gera formlega athugun. En er byrjað að prófa? Það er það sem ég er að spyrja um, það er ekkert svo rosalega flókið. Og hvaða tækifæri og áskoranir sér ráðherra á einstökum málefnasviðum og stofnunum sem eru á ábyrgð ráðherra?