154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

gervigreind.

655. mál
[19:04]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og finnst hann fylgjast mjög vel með. Þær undirstofnanir sem eru í því ráðuneyti sem ég stýri, dómsmálaráðuneytinu, hafa tilhneigingu til að vera svolítið seigfljótandi til breytinga og ég hygg að þannig viljum við kannski hafa það, sérstaklega í dómskerfinu.

En hv. þingmaður nefnir einnig að hér hafi margir ráðherrar komið upp og svarað með mjög formlegum hætti. Ég held að ég geri það líka þar sem ég hef ekki látið gera úttekt á því með hvaða hætti hægt væri að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð. Og þar sem engin úttekt hefur verið gerð hefur heldur ekki farið fram markviss skoðun á því hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstaka málefnasviðum eða stofnunum sem eru á ábyrgð ráðherrans. Af þeim sökum hefur ekki verið greint hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstaka málefnasviðum og hjá stofnunum. Hins vegar er unnið mjög markvisst að því í ráðuneytinu og með okkar stofnunum að leysa af hólmi gamlar tæknilausnir og breyta verklagi hjá flestum stofnunum dómsmálaráðuneytisins með því að nýta þá vinnu og innviði sem hafa verið í þróun hjá hinu opinbera eða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Í þeirri vegferð hefur komið til tals að ýmis tækifæri geti verið fyrir hendi í að nýta gervigreind til einföldunar og stuðnings ýmissa verkefna hjá stofnunum þótt ekki hafi verið gerð sérstök úttekt eða greining á nákvæmlega hvað hægt sé að nýta og hvað ekki. Eitt af því sem tekið hefur verið til skoðunar er notkun á talgreini hjá dómstólum og lögreglu til nýtingar við uppritun á yfirheyrslum og því sem fram fer í dómsal. Sú vinna er mjög skammt á veg komin og er enn á þróunarstigi. Útgáfa af þessari tækni er notuð, m.a. hér hjá Alþingi, við uppritun framsagnarræðna o.fl. en þarfnast meiri þróunar svo að nota megi hana í umhverfi dómstóla. Það er alveg ljóst að ýmis tækifæri eru í nýtingu á gervigreind á ákveðnum málefnasviðum og verkefnum og mikilvægt er að greina vel í hvaða tilgangi skal nýta slíkar lausnir og horfa til þess hvaða ávinningi það muni skila til framtíðar.

Gervigreindin hefur þróast hratt á undanförnum árum og mun gera það áfram og við sem samfélag þurfum að vera vakandi fyrir því hvar er eðlilegt að nýta slíka tækni og hvar ekki. Því fylgja ýmsar áskoranir sem nauðsynlegt er að greina og tryggja að nýtingin sé til þess fallin að auka skilvirkni, tryggja sanngirni og halda uppi grundvallarréttindum og gildum í íslensku réttarríki. Það mætti jafnvel horfa til þess að ráðuneytin myndu í sameiningu skoða með hvaða hætti væri hægt að nýta gervigreind hjá stofnunum ríkisins og að samræmd yrðu ákveðin viðmið og gildi í þeim efnum.