gervigreind.
Forseti. Það eru þrjú atriði sem ég vil nefna. Píratar fóru í heimsókn til lögreglunnar á Suðurlandi fyrir nokkru. Varðstjóri þar bryddaði upp á því vandamáli sem tengdist yfirheyrslunum, því að skrifa upp allar yfirheyrslur til þess að hafa þær aðgengilegar. Þá lögðum við einmitt til að þeir myndu hafa samband við þingið til að fá aðstoð hvað það varðar, af því að við værum með svo góðan sjálfkrafa ræðurita. Ég býst við að viðkomandi varðstjóri hafi bara gengið í verkið, mér heyrist það, og ég er ánægður með það.
Síðan spyr ég ráðherra einfaldlega, miðað við svar frá ráðherra, hvort ekki sé tilefni til að gera þessa úttekt sem ekki hefur verið gerð, þá ekkert endilega rosalega formlega heldur bara prófa, sjá hverjir möguleikarnir eru, fara í ákveðið rannsóknarverkefni. Ég held að ég láti bara vita af því strax að ég hyggst spyrja um hverjar framfarirnar hafi orðið í haust til þess að hjálpa til við að reka á eftir.