154. löggjafarþing — 87. fundur,  18. mars 2024.

gervigreind.

655. mál
[19:10]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, ég held að tækifærin liggi víða hvað þessa nýju tækni varðar. Við sjáum að hún mun taka yfir mörg verkefni sem við höfum talið sjálfsagt að maðurinn komi nálægt. Ég nefni í því sambandi færslu bókhalds og önnur verkefni sem við myndum segja að væru svolítil handavinna. Vissulega er það að rita upp yfirheyrslur handavinna, þannig að ég held að tækifærin liggi víða. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja ráðuneytin til umhugsunar um að kanna til hlítar hvaða möguleikar eru bæði í ráðuneytunum og eins í undirstofnunum þeirra hvað þetta varðar. Ég ætla sömuleiðis að þakka hv. þingmanni fyrir það að hann ætlar greinilega að sýna ráðuneytunum aðhald og fylgja þessari fyrirspurn eftir. Ég vona að næst þegar ég kem hér í ræðupúlt og svara hv. þingmanni þá muni ég geta sagt að ég sé með tilraunaverkefni í gangi og vonandi að þau gangi vel. Það er tilefni til að gera úttekt, það er tilefni til að prófa og það er tilefni til að taka upp breytt vinnulag með breyttri tækni, ekki bara til hægðarauka heldur einnig til hagræðingar.