154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Dögum og vikum og nú mánuðum saman hefur hópur Palestínumanna og stuðningsfólks hælisleitenda frá Palestínu mótmælt við Alþingishúsið. Mótmæli hafa byrjað í upphafi hvers þingdags og staðið fram undir kvöld. Fjöldi Palestínumanna og stuðningsmanna þeirra hafa barið og lamið þinghúsið að utan, lamið á glugga og slegið á trumbur, blásið í flautur og valdið ónæði, ótta og óþægindum. Fólkið í landinu undrast þessa framkomu sem er einkennileg birtingarmynd þakklætis þessa fólks fyrir hæli sem því er veitt hér. Þegar ég birti færslu um atganginn á fésbókinni í gær hélt fólk að þetta væri í fyrsta skipti sem slíkur atgangur ætti sér stað hér við þinghúsið. Það er með ólíkindum að þingmenn, ráðherrar og starfsfólk Alþingis skuli þurfa að þola þessa ömurlegu framkomu og óþægindi dag eftir dag, dögum og vikum saman.

Virðulegur forseti. Ég velti fyrir mér hvaða löggjafarþing í heiminum myndi leyfa aðra eins framkomu við helgasta reit lýðræðis hvers lands. Það er með ólíkindum hvernig Palestínumenn, sem hingað hafa leitað hælis, sýna þjóðþinginu og Íslendingum þakklæti sitt. Hér bera skattgreiðendur kostnað af veru þeirra og húsnæði, heilbrigðisþjónustu og fjölskyldusameiningu og þetta er þakklætið sem þjóðinni er sýnt. Við erum að kalla yfir okkur fólk sem ber með sér þessa ógnarmenningu, fólk sem beitir hótunum til að ná fram kröfum sínum, hefur ráðist að þingmanni og gerir sig líklegt til að vinna okkur sem hér störfum líkamlegt tjón.

Virðulegur forseti. Er ekki mál að linni? Það er sjálfsögð krafa að vinnufriður og vernd okkar sem hér störfum sé tryggð. Það er ekkert sem bendir til annars en að þessi ógn sem stafar af menningarheimi feðraveldisins sé að breyta þeirri mynd sem við Íslendingar (Gripið fram í.) höfum alist upp við. Er vilji til þess að innflutt reiði og hatur í garð jaðarhópa verði fest í sessi með þessu fólki?