154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

aðkoma stjórnvalda að kauptilboði Landsbankans í TM.

[14:12]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég er á svipuðum nótum. Það er nægur tími í þingstörfunum alla vega fyrir munnlega skýrslu þar sem það átti að fjalla um fjármálaáætlun, það er frekar augljóst. En það er líka alveg undarlegt, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom hérna að, að við fengum að vita seint í síðustu viku að það væri búið að blása af áætlanir um fjármálaáætlun og að þá hlaupi ráðherra strax erlendis með mjög stuttum fyrirvara. Það hlýtur að vera glufa þarna inn á milli til að ræða þessi mál því að þau varða ansi marga milljarða af ábyrgð sem ríkið væntanlega ber á þessum gjörningum sem eru að fara í gang í Landsbankanum. Það þarf að gera grein fyrir því hvernig mál standa þarna því að þetta lítur út fyrir að vera enn eitt fíaskóið í rauninni hvað varðar stjórn ríkisbanka og þess apparats sem þar er í kring.