154. löggjafarþing — 88. fundur, 19. mars 2024.
kvikmyndalög.
486. mál
Virðulegur forseti. Mig langaði að taka örstutt til máls varðandi þetta frumvarp og mikilvægi þess að formuð var kvikmyndastefna á sínum tíma. Þetta er liður í því að framfylgja kvikmyndastefnunni og þetta sýnir fram á að með markvissri stefnumótun er hægt að styðja verulega við atvinnugreinar sem við höfum trú á. Ég vildi þakka nefndinni fyrir að hafa unnið vel að þeim breytingum sem hún hefur verið að gera í sambandi við þetta frumvarp.