framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni velferðarnefndar, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, fyrir sína framsögu. Er það nema furða að það vakni ansi margar spurningar og fyrsta spurningin er þessi: Eigum við þá von á því, hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, að hæstv. ráðherra og ríkisstjórn muni samþykkja samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem sá þingmaður sem hér stendur hefur ítrekað mælt fyrir hér síðan ég kom á Alþingi Íslendinga árið 2017? Hvernig stendur á því að það er verið að skipa alls konar starfshópa og undirbúningsvinnu í stað þess að byrja á því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? Ég mælti fyrir lögfestingu samningsins í október síðastliðnum. Ég hef ekkert frétt enn. Enn þá liggur samningur Sameinuðu þjóðanna ofan í skúffu hæstv. ráðherra og formanns velferðarnefndar, Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur. Megum við þá eiga von á því, hv. þingmaður, að við séum að fara að fá samninginn inn í 2. umræðu og í lýðræðislegt ferli hér inni á Alþingi?
Svo er það annað sem mig langar að ýja að við hv. þingmann. Er hún búin að heyra um áfallið sem 32 einstaklingar sem starfa á verndaða vinnustaðnum Múlalundi urðu fyrir? Þeir eru búnir að koma hér út í samfélagið og ég er að fá grátandi einstaklinga í símann hvern einasta dag og neyðaróp um það: Hvers vegna er verndaði vinnustaðurinn okkar eitthvað sem við erum að fara að missa nú? Hvers vegna er öryggi okkar og öllu kippt undan fótum okkar nú? Hvað höfum við gert?
Síðast en ekki síst tala ég hér sem öryrki. Það er enginn skilningur á því þegar verið er að fjalla um málefni öryrkja og í þessu tilviki þessar greinar í samningi Sameinuðu þjóðanna sem er verið að vísa til þar sem á að koma með jöfnuð (Forseti hringir.) og við eigum að fá að komast á almennan vinnumarkað — þá er það hreinlega að túlkað það þröngt (Forseti hringir.) einstaklingurinn fær ekki einu sinni val um það hvort hann geti, treysti sér til og muni geta verið á almennum vinnumarkaði eða þurfi nauðsynlega á því að halda að vera á vernduðum vinnustað.