154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[14:50]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður sé eitthvað að ruglast því að ég áttaði mig ekki á svarinu. Er það svo að hv. þingmaður haldi það að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé öðruvísi þýddur og öðruvísi lagður fram af Ingu Sæland og Flokki fólksins heldur en hann verður „einhvern tímann“ og „seinna“, sem ég veit ekki hvenær á að verða? Dettur hv. þingmanni það í hug að samningur Sameinuðu þjóðanna, sem ég mælti fyrir í haust — að það sé ekki jafn góðra gjalda vert að ég geri það eins og einhver annar? Þannig að ég ítreka spurninguna og ég óska eftir hreinskilnu svari: Ætlar hv. þingmaður og formaður velferðarnefndar að sjá til þess að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem ég mælti fyrir í október síðastliðnum, þýddum fyrir alla eins, komi hér inn í 2. umræðu Alþingis Íslendinga og fái lýðræðislega málsmeðferð í þinginu? Er það það sem við megum eiga von á eða á að draga lappirnar í lögfestingunni og bíða eftir að hinar og þessar nefndirnar hafi starfað hér (Forseti hringir.) svo og svo lengi án þess að í rauninni nokkuð sé raunverulega gert fyrir fatlað fólk (Forseti hringir.) samkvæmt samningnum?