154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[14:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að segja að ég er ekki sammála síðustu orðum hv. þingmanns. Varðandi málsmeðferð í nefndum, einstaka þingmannamál og annað slíkt, þá ætla ég ekki að lofa því hér með mál hv. þingmanns frekar en mál annarra þingmanna sem eru til umfjöllunar í velferðarnefnd … (IngS: Þetta er samningur Sameinuðu þjóðanna.) Það breytir því ekki að þetta er þingmannamál sem er til umfjöllunar inni í nefndum og við getum deilt um það hvort mál eigi að fá forgang eða ekki forgang og með hvaða hætti. Ég ætla ekki að lofa því hér og nú að mál hv. þingmanns, hvorki þetta eða önnur sem hún hefur lagt fyrir, (IngS: … samningur Sameinuðu þjóðanna.) sem eru til umfjöllunar í nefndinni. Ég fór yfir það hér áðan hvernig ferlinu verður háttað og ég kem til með að standa með því ferli sem kemur fram í þessari áætlun sem við erum hér með til umfjöllunar.