154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[14:52]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér stórt og mikið mál sem er í sjálfu sér mjög metnaðarfullt og verður athyglisvert að sjá framgang þessa máls. Þetta er mál sem við ætlum að vinna á næstu árum og vonandi tekst okkur vel upp hvað það varðar. Ég tók eftir því, af því að ég sit sem áheyrnarfulltrúi í nefndinni og lýsti yfir stuðningi við þetta álit, að það var ekki tiltekið í nefndaráliti að ég hefði gert það, þannig að mig langaði að nefna það að sá sem hér stendur hefur lýst yfir stuðningi við málið í nefndinni.

En mig langar kannski af því að þetta hangir saman með mörgu öðru að benda á að í þingsályktunartillögunni segir, á bls. 29 undir kaflanum Endurskoðun laga og verkferla um réttindagæslu fatlaðs fólk, með leyfi forseta:

„Réttindagæsla fatlaðs fólks er nú starfrækt innan félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins en bent hefur verið á að það fyrirkomulag tryggi ekki nægilega vel sjálfstæði þeirra þar sem hlutverk þeirra megi ekki takmarkast af því að þeir starfi fyrir ráðuneyti eða stofnun þess. Til að bregðast við þeim ábendingum hefur á yfirstandandi þingi verið lagt fram frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands …“

Þá spyr maður, af því að ég hef ekki getað upplifað það hér á þinginu að það væri einhver sérstök samstaða um að hleypa því máli í gegn innan ríkisstjórnarinnar og ég hef líka velt því fyrir mér: Verður þetta plagg marklaust ef við náum því ekki í gegn að mannréttindastofnunin verði stofnuð?