framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar svar. Mig langar líka að nefna fjármögnunina. Hafandi verið á sveitarstjórnarstigi og upplifað vanfjármögnun á þessum málaflokki langar mig að nefna skýrslu sem við fengum um uppsafnaðan halla í raun og veru á þessum málaflokki upp á einhverja 14–15 milljarða sem orsakast af mörgu; breytingum á lögum, t.d. hvað varðar búsetu, vinnutímastyttingu, launaþróun og ýmsu öðru. Við erum að sjá fram á að málaflokkurinn sé nú þegar vanfjármagnaður og þá spyr maður um fjármögnun til framtíðar. Það er bent á það í bæði umsögn Sambands sveitarfélaga en líka umsögn sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að það þurfi að fara vel yfir þetta. Ég heyri góðan vilja hv. þingmanns um að hvert atriði verði tekið fyrir sérstaklega og skoðað og fjármagnað, en reynslan sýnir okkur allt annað.