154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[14:58]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að reynsla nefnilega sýnir okkur annað og þess vegna er þetta mjög mikilvægt og mjög mikilvægt fyrir okkur hér á þingi að fylgja því stíft eftir. Það er auðvitað þannig, eins og hv. þingmaður veit, að í hverri aðgerð eru ekki endilega sömu aðilar sem koma að vinnunni. Þess vegna hefur nú þegar verið stofnaður þessi framtíðarhópur með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga sem á að taka utan um þetta og halda áfram á þeirri góðu vegferð sem náðist þó fyrir jólin og fylgja eftir því sem við ræddum þegar við fengum í heimsókn til okkar Harald Líndal til að fara yfir niðurstöður starfshópsins sem var um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þar kom skýrt fram þetta sem hv. þingmaður er að segja. En um leið er þetta komið inn í þessa vinnu hjá þessum hópi þannig að ég vonast til þess miðað við hvernig gekk síðast að þá þrátt fyrir allt náum við einhverjum árangri í þessu máli.