framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.
Forseti. Ég hef tvær spurningar varðandi mat á áhrifum, þ.e. kostnaðarmatið. Í þingsályktuninni stendur að það sé 55 milljónir. Það er frekar augljóst að það er ekki rétt kostnaðarmat miðað við þær aðgerðir sem leiða af þessum verkum. Það getur vel verið að það kosti 55 milljónir að gera úttektir og stofna starfshópa og ýmislegt svoleiðis. En það sem verður úr, vinnan sem kemur úr þeim starfshópum og úttektum, og þær aðgerðir sem þarf að fara í eftir á, mun tvímælalaust kosta meira. Aðgengi að námi og þess háttar mun kosta miklu meira en 55 milljónir, miklu meira. Og miðað við það að þingið eigi að vesenast í fjármálaáætlun til 5 ára þá er ekki hægt að horfa bara til þessara aðgerða frá þröngu sjónarhorni og segja að það kosti 55 milljónir að búa til starfshóp hér og úttekt þar o.s.frv., heldur verðum við að vera með kostnaðaráætlun á því sem kemur í kjölfarið, á því sem á að búa til þessi störf. Þessi starfshópur á að búa til eitthvert úrræði. Það mun kosta. Kostnaðaráætlunin er því röng, bara til að hafa það algjörlega á hreinu miðað við það hvernig þetta lítur út þegar búið er að klára allar aðgerðir til enda. Ég vildi því leita álits fyrrverandi formanns fjárlaganefndar á því hvernig farið er með þingsályktunartillöguna hérna og kostnaðarmat á henni. Og hins vegar: Voru breytingartillögur meiri hlutans kostnaðarmetnar?