154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[15:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni. Mig langar að lesa hérna, með leyfi forseta, aðeins upp úr C.7, þ.e. um rétt fatlaðs fólks til að njóta fjölskyldulífs.

„Verkefnið gangi út á að tryggja að viðeigandi stuðningur standi til boða til að gera fötluðu fólki kleift að njóta réttar síns til fjölskyldulífs. Samráðshópur félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks vinni leiðbeiningar á grunni kortlagningar þar sem m.a. verði horft til þess hvernig þjónustuþörf sé metin og hvort horft sé til fjölskylduaðstæðna við matið, hvaða þjónusta standi til boða í sveitarfélögum og biðtíma eftir þjónustu.“

Síðan á að móta leiðbeiningar sem tryggi að fatlað fólk fái stuðning til þess að njóta fjölskyldulífs óháð fötlun og geti sinnt þeim fjölmörgu verkefnum sem því fylgja á eigin forsendum. Tímaáætlunin er sem sagt á næsta ári, ábyrgðin er á hendi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins en þarna eru samstarfsaðilar mennta- og barnamálaráðuneytið, sambandið, fatlað fólk og hagsmunasamtök þess. Þannig að þetta er hérna og við þurfum bara að vera dugleg að fylgja því eftir að þetta verði gert af því að eðli þessa samnings er auðvitað bara að vinna gegn allri mismunun og styðja fólk að lifa eins og það vill sjálft gera. Það er auðvitað fyrst og síðast það sem hér er undir.

Mig langaði samt að segja við hv. þingmann líka varðandi breytinguna sem hann leggur til hér að þá segja mér upplýsingar innan úr forsætisráðuneytinu að það breyti í rauninni efnislega engu hvort valfrjálsa bókunin er lögfest eða fullgild af því að kæruleiðin er opnuð með þessu sem hér er lagt til og í rauninni bætist ekkert við með lögfestingu. Það gæti hins vegar gæti orðið talsvert flóknara ferli. Þannig að ég myndi alla vega vilja upplýsa það hér.

Svo langar mig og get ekki gert annað en að spyrja hv. þingmann hvort hann hyggist styðja málið þrátt fyrir að vera með nefndarálit og annað slíkt, af því að mér sýnist nú að hann sé jákvæður til málsins þrátt fyrir allt þó að það séu ákveðnar athugasemdir.