154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[15:39]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir andsvarið. Jú, ég sagði það í upphafi að ég styddi þetta málefni og ég styð það. Auðvitað styður maður öll skref, hversu lítil eða stór sem þau eru, í málefnum fatlaðs fólks. Það er bara ekki annað hægt. En ég verð að segja líka um þetta í fjölskyldumynstur og annað að ég held að það þurfi líka, sérstaklega þar, að taka utan um og nefna börn og aðstöðu þeirra á tveimur heimilum. Það verður að skerpa á því að það sé komið inn, að það sé alveg á hreinu að þau fái þá þjónustu á báðum heimilum sem þau eiga rétt á.

Ég er sammála því að við þurfum að sjá til þess að kæruleiðirnar séu virkar. Það er krafa, hefur verið krafa Öryrkjabandalagsins og ég tel það rökrétt að við fullgildum og lögfestum þessa valfrjálsu bókun vegna þess að einhvern veginn er kerfið þannig að ef það er ekki búið að negla þetta — og ég þekki það bara af eigin raun að vera t.d. í þessu almannatryggingakerfi og öðrum kæruleiðum innan þess — þá er alltaf tilhneigingin í kerfinu til þess einhvern veginn að loka á fatlaða fólkið. Það hefur alltaf minni möguleika nema það sé búið að geirnegla það. Þessi hugarfarsbreyting þarf að koma einhvern veginn inn í kerfið en hún virðist ekki koma inn nema við séum búin að lögfesta það og ganga frá því pottþétt. Þá er eins og kerfið virki og átti sig á því að þeir verða að taka tillit til þess og fara eftir þessu. Annars einhvern veginn, því miður, ég þekki það af reynslunni og ég veit það, er eins og fólk (Forseti hringir.) sé hunsað nema þetta sé alveg skothelt.