154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[16:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Afsakið að ég sé pirraður hérna. Verkefnið felst í kortlagningu og greiningu. Það á ekkert að þurfa þingið til að segja stjórnvöldum að gera það. Komið með kortlagninguna og greininguna fyrir þingið. Það er það sem ég er að segja. Vinsamlegast, hv. þingmaður, ekki segja mér hvað ég er að segja heldur hlustaðu á hvað ég er að segja. Ég er að segja: Ekki koma með tillögu um að stjórnvöld skipi starfshópa eða kortleggi eitthvað, komið frekar með afraksturinn af vinnu starfshópsins og kortlagningunni. Samráðið var að biðja um afraksturinn af því, ekki það að stofna starfshóp eða kortleggja neitt. Við þurfum ekki þingsályktun um að við þurfum þingsályktun um afraksturinn. Við þurfum kostnaðargreiningu á afrakstri þeirrar vinnu. Vinsamlegast hlustaðu á hvað ég er að segja; afraksturinn. Það að stofna starfshóp kemur okkur ekkert við. Stjórnvöld geta bara gert það og þurfa ekki að koma með það fyrir þingið. Það er það sem ég er að gagnrýna. Ég er ekki að gagnrýna það að afraksturinn komi síðan fyrir þingið — endilega, það er nauðsynlegt. Kostnaðargreiningin er þar líka. Höldum þessu tvennu aðskildu, hvað ég er að gagnrýna og síðan hvað þarf að gera.