154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[16:30]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að syngja það en áðan í útvarpinu heyrði ég lag. Ég hefði haldið að formaður velferðarnefndar væri náttúrlega með þessa hluti á hreinu eins mikilvægir og þeir eru, hvernig verið er að nálgast það að taka fyrsta verndaða vinnustaðinn í gegn eins og er verið að gera núna við Múlalund. Það er algerlega hafið yfir allan vafa að það kemur skýrt fram að það eigi að láta þetta fatlaða fólk fara á almennan vinnumarkað. Ég er sammála hv. þingmanni þegar hún talar um sína sýn á búsetu og að hafa val um hina ýmsu útfærslu búsetuúrræða. En það liggur algerlega líka ljóst fyrir þegar hv. þingmaður segir hér að það sé eingöngu verið að fylgja samningi Sameinuðu þjóðanna — sem ég ítreka að er nú ólögfestur þannig að ekki er verið að fylgja honum en a.m.k. að reyna að feta stíginn — þá er það ekki rétt að samningur Sameinuðu þjóðanna feli það í sér að einstakling, sem þarf á hjálp að halda, eigi að skikka á almennan vinnumarkað. Þrátt fyrir að það eigi ekki að mismuna fötluðu fólki, þrátt fyrir að fatlað fólk eigi að fá allan þann stuðning sem t.d. 76. gr. stjórnarskrár veitir því, þá breytir það ekki þeirri staðreynd að fatlaði einstaklingurinn á alltaf að eiga val og hann á alltaf að fá að njóta vafans. Og ef þessi einstaklingur er ekki bær um að vera á almennum vinnumarkaði þá á aldrei einu sinni að voga sér að ýja að því við hann ef það verður ekki til neins annars heldur en að brjóta hann niður andlega.