málstefna íslensks táknmáls 2024--2027 og aðgerðaáætlun.
Forseti. Mér þykir leitt að þurfa að benda hv. þingmönnum á staðreyndir mála. Hv. þingmaður segir: Réttindi þurfa ekki að kosta neitt. Ókei, gefum okkur að það sé rétt. En við erum að tala um þingsályktunartillögu og þingsályktun tryggir engin réttindi. Það eru lög sem tryggja réttindi. Hv. þingmaður segir að þessi stefna sé til frambúðar, eigi að gilda næsta kjörtímabil o.s.frv. Það er bara ekki rétt. Við vitum alveg hvernig er farið með þingsályktanir svona á milli kjörtímabila. Það var tillaga um það að ganga inn í Evrópusambandið, það var þingsályktun. Svo var henni bara stungið ofan í skúffu. Hún er enn þá í gildi, sem er svolítið merkilegt, en það er ekkert verið að gera í henni. Það er dálítið vandamál þingsályktunartillagna.
Framsögumaður vitnaði hérna í hin ýmsu lög sem eiga að tryggja einmitt réttindi táknmálstalandi barna en miðað við tillögurnar hérna þá er ekkert verið að framfylgja þeim lögum einu sinni. Til hvers erum við að setja það sem á þegar að vera tilgreint og tryggt í lögum, réttindi sem eiga að vera tryggð í lögum, í þingsályktunartillögu, hverju breytir það og bætir að setja í einhverja þingsályktunartillögu og samþykkja það aftur þegar lögin eru einmitt rétthærri og tryggja réttindi? Þingsályktun tryggir ekki réttindi.