háskólar.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um háskóla, nr. 63/2006, um nám og prófgráður. Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta heimild háskóla til að bjóða upp á svokallað örnám til námseininga og að færa reglur um prófgráður og námsframboð háskóla nær þeim viðmiðum og þeim hæfniramma sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega:
Nefndin fjallaði um viðmið um æðri menntun og prófgráður en frumvarpið er, eins og ég sagði áðan, liður í uppfærslu á gildandi viðmiðum um æðri menntun og prófgráður sem voru birt með auglýsingu nr. 530/2011, um útgáfu viðmiða um æðri menntun og prófgráður. Ísland er aðili að Bologna-samstarfinu sem er grunnur að Evrópska háskólasvæðinu. Með þátttöku í Bologna-samstarfinu felst skuldbinding aðildarríkjanna um að fylgja sameiginlegum evrópskum stöðlum og gæðaviðmiðum fyrir háskóla. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu hefur verið unnið að uppfærslu og breytingum á gildandi viðmiðum og voru drög að nýjum viðmiðum um æðri menntun og prófgráður birt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2022.
Helstu breytingar sem felast í uppfærðum viðmiðum um æðri menntun og prófgráður eru í fyrsta lagi að lágmark ECTS-eininga til diplómaprófs og viðbótarprófs á meistarastigi hækkar úr 30 í 60 einingar. Í öðru lagi að kynna og skilgreina örnám til ECTS-eininga sem hluta af bakkalár-, meistara- eða doktorsnámi. Í þriðja lagi að opna á möguleika á veitingu svokallaðs M.Phil.-prófs á doktorsstigi. Með því að auka kröfur um einingafjölda til námsloka á grunn- og meistarastigi verður til svigrúm fyrir stuttar og sveigjanlegar námsleiðir sem þó leiða til ECTS-eininga, svokallað örnám. Þá eru lagðar til breytingar á 2. mgr. 7. gr. laga um háskóla þannig að ekki verði þar lengur að finna upptalningu á viðurkenndum prófgráðum og lokaprófum sem háskólar miða við heldur verði vísað til áðurnefndra viðmiða um æðri menntun og prófgráður þar sem slíkar kröfur eru settar fram.
Meiri hlutinn undirstrikar að viðurkenndar prófgráður og lokapróf sem ráðherra verður heimilt að kveða á um í viðmiðum samkvæmt 5. gr. laganna skulu byggjast á og samræmast alþjóðlegum viðmiðum um hæfni við námslok eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
Þá fjallaði nefndin um örnám. Örnám er nýjung og skilgreint alþjóðlega sem stutt nám þar sem nemendur tileinka sér ákveðna hæfni sem er metin á gagnsæjan og samræmdan hátt í námsmati og með ECTS-einingum. Örnám fellur utan skilgreindra námsloka í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður.
Líkt og rakið er í minnisblaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, frá 29. febrúar 2024, fellur örnám á háskólastigi undir allt hefðbundið gæðamat sem háskólum ber að fara eftir nú þegar. Örnám getur verið frá 1 ECTS til 59 ECTS samkvæmt uppfærðum viðmiðum um æðri menntun og prófgráður en getur ekki eitt og sér leitt til prófgráðu. Þá verður hægt að meta örnám til styttingar náms þegar það á við. Í greinargerð með frumvarpinu er rakið að með því að nýta tæki Bologna-samstarfsins opnast möguleiki fyrir háskólastofnanir til að meta örnám til styttingar náms eða til inntöku í nám á meistarastigi. Þá eykur örnám möguleika stúdenta á að bæta við sig sérhæfðri færni og opnar leiðir til áframhaldandi náms. Þá er þess getið að á vettvangi Evrópska háskólasvæðisins er unnið að því að móta leiðbeiningar fyrir háskóla um örnám og verða skilyrði og rammi örnáms betur afmörkuð í viðmiðum um æðri menntun og prófgráður í framhaldi af útgáfu leiðbeininganna.
Að jafnaði voru umsagnaraðilar jákvæðir gagnvart markmiðum frumvarpsins. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið sem varða mikilvægi þess að menntakerfið mæti þörfum vinnumarkaðar og almennings. Háskóli Íslands bendir jafnframt á mikilvægi þess í umsögn sinni að stjórnvöld efni til átaks til að kynna örnám á háskólastigi fyrir haghöfum, þ.m.t. núverandi og verðandi háskólanemum, atvinnurekendum og stéttarfélögum háskólamenntaðs fólks. Sér í lagi er mikilvægt að upplýsa heildarsamtök á vinnumarkaði um hvað felst í örnámi til að stuðla að því að það verði viðurkennt í kjara- og stofnanasamningum.
Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess, ekki síst í ljósi þess að formleg umgjörð og viðmið fyrir örnám eru enn í vinnslu. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hyggst standa fyrir fræðslu og kynningarátaki haustið 2024, annars vegar ætlað háskólunum og hins vegar haghöfum, svo sem væntanlegum nemendum, atvinnurekendum og stéttarfélögum, og telur meiri hlutinn það rosalega mikilvægt til að tryggja farsæla innleiðingu örnáms.
Nefndin fjallaði að auki um fjármögnun háskólanna og örnám. Við umfjöllun nefndarinnar um málið var rætt um hvernig fjármögnun örnáms falli inn í fjármögnunarlíkan háskólanna.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að ráðgert sé að kostnaður við þróun og framboð á örnámi rúmist innan núverandi fjármögnunarlíkans háskólanna. Í umsögn frá Háskólanum á Bifröst var bent á að æskilegt væri að í reiknilíkani háskólanna verði gert ráð fyrir fjárhagslegum hvötum til að þróa örnám og útskrifa nemendur úr örnámi. Í minnisblaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis kemur fram að það sé til skoðunar hvort gera eigi ráð fyrir sérstökum hvötum til þróunar á örnámi. Hið nýja reiknilíkan, sem er í vinnslu hjá ráðuneytinu, sbr. drög að nýjum reglum um fjárframlög til háskóla sem hafa verið birt í samráðsgátt, geri ráð fyrir að greitt verði fyrir loknar einingar, þar á meðal vegna örnáms, en ekki verði um formleg námslok að ræða sem háskólar fái greitt fyrir.
Fyrir nefndinni var jafnframt fjallað um aðgengi að örnámi og mikilvægi þess að tryggja jöfn tækifæri til að stunda örnám. Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að þetta verði skoðað nánar þegar útfærsla og þróun örnáms hjá háskólunum liggur fyrir. Jafnframt verði horft til þeirra sjónarmiða þegar kemur að boðaðri endurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna.
Hvað varðar útfærslu örnáms var einnig fjallað um hvernig það falli að endurmenntun eða símenntun á vegum háskólanna. Í umsögn frá Símenntun Háskólans á Akureyri er lagt til að það verði skýrt í lögunum að sjálfstæðar sértekjueiningar innan háskólanna hafi leyfi til að „selja örgráður“ í samstarfi við deildir innan háskólans. Í minnisblaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis kemur fram að opinberu háskólarnir þurfi sjálfir að taka afstöðu til skrásetningargjalds vegna örnáms. Þá sé opinberu háskólunum heimilt að bjóða upp á örnám í gegnum endurmenntun hjá sjálfstæðum endurmenntunarstofnunum en þær hafa þó ekki viðurkenningu ráðherra samkvæmt 3. gr. laga um háskóla til að veita einingar eða háskólagráður. Hins vegar geti fræðasvið og deildir opinberra háskóla metið slík námskeið til eininga og námsgráða samkvæmt heimild í 10. gr. laga um háskóla, þannig að þarna getur orðið ákveðið samspil.
Það kom svo fram fyrir nefndinni að í c-lið 1. gr. frumvarpsins væri notað hugtakið „örnámskeið“ í stað „örnám“ líkt og í greinargerð og er lagt til að það verði samræmt. Hugtakið örnám vísi bæði til styttri námsleiða og stakra námskeiða. Meiri hlutinn tekur undir ábendinguna og leggur til breytingu þess efnis.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hlutans rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halldóra Mogensen, Líneik Anna Sævarsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir. Sigmar Guðmundsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur álitinu.
Herra forseti. Það er mikilvægt að hér séu gerðar breytingar á lögum um háskóla sem miða að því að færa ramma um viðurkenningu náms til samræmis við það sem gerist á samevrópska háskólasvæðinu til að tryggja gagnkvæma viðurkenningu náms innan Evrópu. Það er stórt hagsmunamál stúdenta að geta farið á milli skóla í Evrópu og sótt nám erlendis þannig að nám sem þeir hafa tekið hér sé metið með sambærilegum hætti þar og svo öfugt. Örnám er nýjung í lögunum en þó er byrjað að bjóða upp á örnám í íslenskum háskóla og er það vel, enda græðum við sem samfélag alltaf á því þegar fólk fer í nám til að sækja sér þekkingu á hinum ýmsu fræðasviðum. Örnám hefur vaxið hratt í Evrópu, ekki síst vegna krafna atvinnulífsins og einstaklinga um hæfni, þróun og endurmenntun í formi styttri námsleiða. Örnám er einnig sniðugt sem slíkt til að laða að ólíka og fjölbreytta hópa í háskólanám sem hlýtur að vera keppikefli okkar.