154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

búvörulög.

505. mál
[17:50]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni, formanni atvinnuveganefndar, fyrir mjög ítarlega og góða yfirferð yfir býsna flókið mál þó að það láti yfir sér. Ég verð að segja að við þurfum að tala meira um landbúnað og við þurfum að tala meira sérstaklega um stöðu bænda hér í þessum sal. Við þurfum að vera skýrari en við oft erum um hvað við viljum og ná samstöðu um það hvernig við getum tryggt hag þessarar atvinnugreinar og hag bænda sem best. Ég myndi t.d., og það þarf ekki að koma neinum sem þekkir mig og þann flokk sem ég starfa í umboði fyrir, vilja sjá það, ekki síst gert í ljósi þess að skoða aðbúnað, þ.e. fjármögnunarkostnað, vaxtakostnað í þessari atvinnugrein — líkt og vissulega margar aðrar er þetta fjármögnunarfrek vinna, fjármögnunarfrek atvinnugrein — og ég myndi vilja að við færum í alvöruumræðu um landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og hagsmuni íslenskra bænda innan Evrópusambandsins. Ég held að við eigum það nú til að taka umræðuna um þetta utan þessa salar á góðri stund. En ég held að það sé einnar messu virði að leggja töluverða vinnu í að ræða þessi mál fyrir alvöru og fara svolítið í dýptina á þessu. En við erum með þetta mál núna og mig langar að fara örfáum orðum um það.

Ég ætla ekki að fara beinlínis yfir efnið, það gerði hv. framsögumaður býsna vel og ég hef ekkert við það að athuga. Þrátt fyrir að vera í atvinnuveganefnd er ég ekki á þessu áliti. Ég hef ekki gert það upp við mig hvernig atkvæði mitt mun falla. En ástæðan fyrir því að ég er ekki á álitinu felur það eiginlega í sér að ég er ekki, þrátt fyrir góða vinnu nefndarinnar, sannfærð um að þetta sé leiðin sem best er til að ná þessum markmiðum fram og mig langar kannski til að fara örfáum orðum um það. Til að byrja með þá er ég, líkt og þeir aðilar sem voru með neikvæða umsögn um málið, sammála markmiðum um að efla íslenskan landbúnað en tel ekki endilega þessa sértæku undanþágu frá almennum samkeppnislögum vera leiðina og hef reyndar í stærri mynd ákveðnar áhyggjur af því að það kunni að setja fordæmi sem getur reynst okkur erfitt. Og þá er ég kannski að horfa út fyrir landbúnaðinn sem slíkan.

En aðeins til að fara yfir þetta þá var þetta mál á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar síðasta vetur. Það hlaut þá umtalsverða og umfangsmikla gagnrýni og var ekki unnið áfram. Þá var afurðastöðvunum veitt þessi undanþága en ekki frumframleiðendum eins og er núna og málinu var breytt til betri vegar þegar það er lagt fram aftur núna í haust. Síðan er ég algerlega sammála hv. framsögumanni um að þær breytingar sem meiri hluti nefndarinnar gerði á málinu eru líka af hinu góða og koma að ákveðnu leyti til móts við umsagnir og athugasemdir þeirra sem fjölluðu um málið. Þannig að það liggur bara þannig fyrir. Mér finnst bara mikilvægt einmitt að þessir — það voru átta frekar en níu umsagnir sem bárust um málið og þar af skiptist það jafnt; það voru þeir sem vildu bara málið áfram án breytinga og studdu það og töldu það vera leiðina til að ná markmiðum um betri hag bænda og svo voru aðrir fjórir umsagnaraðilar sem voru sammála markmiðinu um bættan hag bænda en töldu þetta ekki vera leiðina. Breytingartillögur nefndarinnar voru til þess fallnar og voru tilraun til að mæta þeim athugasemdum og svo hafa menn bara sínar skoðanir á því hvort gengið var nægilega langt. Mínar athugasemdir lúta kannski að því að vera ekki sannfærð um það heldur hvort akkúrat þetta mál nái utan um bændur frekar en milliliði og hvort þetta mál frekar en beiting á 15. gr. samkeppnislaga var betri leið.

Gagnrýnin — af því að ég er sannfærð um að samkeppnin, og þá skiptir ekki máli hvar okkur ber niður, það er hún sem eykur frelsi. Hún eykur nýsköpun. Hún eykur sprotastarfsemi, hvort sem er í landbúnaði eða öðrum greinum, ferðaþjónustu sem dæmi. Við sjáum þetta í sjávarútvegi. En það er þessi 15. gr. samkeppnislaga sem kveður á um ákveðin skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt til þess að samstarf fyrirtækja sé undanskilið bannákvæðunum, sem hefur komið fram hér að eru þessar 10. og 12. gr. samkeppnislaga. Það er þá að samstarfið stuðli að bættri framleiðslu eða dreifingu á vörum og þjónustu, veiti neytendum sanngjarna hlutdeild í ávinningi, leggi ekki höft á hlutaðeigandi fyrirtæki, sem eru óþörf til að ná settum markmiðum, og veiti fyrirtækjum ekki færi á að koma í veg fyrir samkeppni. Það hefur komið fram, það kom fram bæði hjá þeim helmingi umsagnaraðila sem veittu jákvæða umsögn og síðan í máli framsögumanns hér, að 15. greinin virki ekki vegna skilyrðis um sjálfsmat. Það skilyrði kemur inn þegar gerðar eru breytingar á 15. gr. samkeppnislaga árið 2020. Við þær breytingar er Samkeppniseftirlitinu ekki lengur leyft að veita fyrir fram leyfi til beitingar 15. gr., heldur þurfa fyrirtækin sjálf að vega það og meta hvort þau uppfylli þessi skilyrði, sem ég þuldi hér upp, og geti þar með fallið undir þessa 15. gr. Og nú segja menn: Þetta er of íþyngjandi. Hvað ef við metum okkur sjálf rangt og fáum það svo í hausinn að við hefðum brotið samkeppnislög?

Ég skil þetta býsna vel. En ef þetta er almennur skilningur fólks á breytingunum sem gerðar voru þá eru samkeppnislögin ónýtt að þessu leyti og þá verðum við að bregðast við því frekar en að fara í sértækar undanþágur á búvörulögum og lögum um fiskveiðistjórn ef svo ber undir eða hvaða lögum sem er, þá er þetta bara ónýtt. Ég er ekki endilega sannfærð um að svo sé vegna þess að það eru gríðarlega ítarlegar leiðbeiningar sem hafa verið gefnar út af hálfu Samkeppniseftirlitsins og svei mér þá einnig, leyfi ég mér að fullyrða, af hálfu flestra endurskoðunarfyrirtækja og ráðgjafarfyrirtækja hér á landi, svona við lauslega athugun hér fyrr í dag, af því að þetta er flókið. Það er mikilvægt að fyrirtæki geti framkvæmt þetta sjálfsmat sjálf svo vel sé án þess að eiga þetta á hættu og ég skil fullkomlega að menn fari ekki út í þann pakka svona í ljósi sagna um sektir Samkeppniseftirlitsins, þó að ég efist nú kannski um að bændur eða landbúnaðargeirinn fái það á sig í ljósi veltu. En það er önnur saga.

Það sem ég er að segja er að ef 15. gr. var breytt þannig hér í þingsal fyrir þremur, fjórum árum, að við getum bara beitt henni, þá er það það sem við eigum að vera að einblína á núna og breyta. Og kannski verður þetta til þess — af því að ég vil undirstrika að það skiptir máli að við leitum allra leiða til að efla og styrkja bændur. Ég horfi þannig á þessa tillögu, þótt okkur greini á í þessum grundvallaratriðum þar sem ég tel samkeppnina vera leiðina og að við eigum að búa svo um hnútana að samkeppnislögin virki. Og svo, ef menn trúa því ekki að þau virki, þá fara menn þessa leið sem er verið að fara hér núna og ég veit að verður samþykkt hér í þinginu á næstu dögum.

En þetta er gríðarlega mikilvæg umræða. Þetta er vonandi ekki eina skrefið sem við erum að fara að stíga til að styrkja landbúnaðinn, til að styrkja bændur. Einhver skref hafa verið stigin og hv. framsögumaður fór yfir hér áðan þá styrki sem hafa verið veittir utan við ramma samningsins vegna þess að bændur búa við nær óboðlegar aðstæður eins og staðan er akkúrat núna, eins og staðan er í efnahagslífinu og eins og staðan er bara almennt. Þannig að það verður að laga. Við getum ekki búið við það hér að ítrekað þurfi bændur að taka sig saman, ná í gjallarhornin og senda frá sér neyðarkall ef þetta kerfi virkar ekki fyrir þá. Við getum ekki haft þetta þannig, bara alls ekki.

Síðan langar mig aðeins að nefna, og það er nú reyndar útúrdúr en það skiptir samt máli, að ferðaþjónustan okkar er í gríðarlegum vexti. Þar verðum við að búa svo um hnútana að bændur njóti góðs af. En það er líka þannig að ferðaþjónustan nýtur góðs af því að hér séu býli landsins í ábúð, að það séu ábúendur hér, að ferðamenn keyri ekki um hvert eyðibýlið á fætur öðru, af því að þetta er eitt af því sem þeir taka eftir. Það vitum við öll. Við vitum þetta þegar við keyrum um sveitir landsins. Þannig að þetta eru tvær atvinnugreinar sem eiga að styðja hvor við aðra.

Mig langar alveg svakalega til að ræða meira um Evrópusambandið hér en ég ætla mér ekkert að gera það. Ég treysti því að ég fái tækifæri til þess síðar. Mig langar aðeins að nefna, af því að hér er jú vísað í það að Evrópusambandið styrki sína bændur, að það er með gríðarlega öflugt stuðningskerfi. En landbúnaðarstefna Evrópusambandsins, það eru líka ákveðin skilyrði þar fyrir styrkjum í þeirri stefnu. Það er verið að tala um að til þess að hljóta styrki þar þá þurfi það að vera til þess fallið að auka framleiðslu með tækni og rekstrarhagkvæmni. Það þarf líka að vera tryggt að bændur fái hagkvæm framleiðsluskilyrði. Það þarf að tryggja stöðugleika í framleiðslunni, tryggja nægar birgðir og sanngjarnt verð til neytenda. Þetta eru skilyrði frá Evrópusambandinu og þetta er nokkuð sem við gætum líka tekið upp hér. Þetta er auðvitað ekki í þessu frumvarpi enda er þetta bara lítill angi, en þetta eru svona kannski þessir hlutir sem við mættum fara að temja okkur að tala um, að tala um hlutina í stóru samhengi.

Það er svo sem óþarfi að fara í gegnum þessa — ég punktaði nú hjá mér einhverja hluti úr helstu umsögnum aðila, en það er kannski bara þetta, af því að það sló mig bara svo illa að við skyldum sjálf hafa breytt þessari 15. gr., undanþágugrein samkeppnislaga, að menn geti ekki notað það. Mér finnst að það þröngvi okkur eiginlega hér í þessum sal, þegar við viljum mæta þessum vanda bænda, til að fara í plástra, sértækar undanþágur sem ég óttast að geti að einhverju leyti búið til varasamt fordæmi fyrir aðra og er aldrei gott. Við eigum að búa svo um hnútana að ramminn virki og atvinnugreinar, hvort sem það er landbúnaðurinn eða aðrar atvinnugreinar, geti starfað og þau sem þar starfa geti lifað mannsæmandi lífi innan ramma sem við teljum að sé sanngjarn og gegnsær og heiðarlegur en ekki að hafa hlutina þannig að það þurfi að kalla eftir sértækum undanþágum og neyðaraðstoð reglulega af því að það þjónar ekki tilgangi neins okkar.

Að þessu sögðu þá þótti mér þetta góð vinna, eins og alla jafna er þegar atvinnuveganefnd fær mál til meðferðar. Ég held að við séum öll margs vísari. En það eru líka spurningar sem vakna og ég vona að við fáum tækifæri til að svara þeim þótt síðar verði.