154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

ákvarðanir nr. 185/2023 um breytingu á IX. viðauka og nr. 240/2023 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.

808. mál
[18:58]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd tvær ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 2023 um breytingar á IX. og XI. viðauka við EES-samninginn. Ég ætla hér í stuttu máli að gera grein fyrir efni þessara ákvarðana en annars vegar er um að ræða ákvörðun 185/2023, sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð 2022/858, um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Hún er hluti af stafrænum fjármálapakka ESB, sem var fyrst kynntur árið 2020. Þeim lagabreytingum sem lagðar eru til í fjármálapakkanum er ætlað að stuðla að því að umgjörð fjármálamarkaða mæti nútímaþörfum, efli samkeppni og nýsköpun. Á sama tíma er mikilvægt að huga að fjárfestavernd, net- og upplýsingaöryggi auk fjármálastöðugleika. Kjarni þessarar tækni er dreifð færsluskrá en það er ný aðferð sem stuðlað getur að aukinni skilvirkni, öryggi og kostnaðarhagkvæmni á sviði verðbréfaviðskipta sem og í greiðslumiðlun. Reglugerðin lýtur að notkun dreifðrar færsluskrártækni á sérhæfðu sviði fjármálamarkaðar. Ekki liggur fyrir að hvaða marki raunhæft er að reyna muni á framkvæmd reglugerðarinnar hér á landi. Henni er ætlaður takmarkaður gildistími og því ljóst að um endurmat verður að ræða innan fjögurra til sex ára frá gildistöku hér á landi. Nánari upplýsingar verður að finna í frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra til nýrra laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

Hin ákvörðunin sem þingsályktunartillagan nær til, ákvörðun nr. 240/2023, fellir inn í samninginn reglugerð 2018/1807, sem miðar að því að skapa einn gagnamarkað á Evrópska efnahagssvæðinu til að auðvelda þjónustuviðskipti þvert á landamæri. Gerðinni er ætlað að takmarka reglur sem fela í sér beinar eða óbeinar hindranir á flutningi ópersónulegra upplýsinga á milli aðildarríkja, svo sem upplýsinga um fyrirtæki og upplýsinga sem gerðar hafa verið nafnlausar, þ.e. ekki er lengur hægt að tengja þær við einstaklinga. Rétt er að árétta að reglurnar varða ekki persónuupplýsingar, þ.e. upplýsingar sem hægt er að tengja við einstaklinga, svo sem nöfn, kennitölur, heilsufarsupplýsingar einstaklinga og svo fram eftir götunum. Þá miðar reglugerðin að því að efla samkeppni á skýjaþjónustumarkaði með því að auðvelda notendum að skipta um þjónustuveitendur. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun á þessu löggjafarþingi leggja fram frumvarp til laga um innleiðingu á reglugerðinni.

Virðulegi forseti. Haft var samráð við utanríkismálanefnd Alþingis vegna upptöku umræddra gerða í samninginn og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku þeirra á þann hátt sem þingsályktunartillagan tilgreinir. Nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna, má finna í meðfylgjandi tillögu til þingsályktunar. Ég legg til að þegar umræðu þessari lýkur verði tillögunni vísað til utanríkismálanefndar.