154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

ákvarðanir nr. 185/2023 um breytingu á IX. viðauka og nr. 240/2023 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.

808. mál
[19:01]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Já, það er ánægjulegt að sjá að þessar gerðir eru hér fram komnar vegna þess að þær setja ákveðnar reglur um hluti eins og það sem hefur verið kallað hér dreifð færsluskrártækni, en það er það sem hlutir eins og bitcoin og aðrar sýndarmyntir og eins hinar ýmsu sýndareignir byggja á. Það er mjög mikilvægt, þar sem þetta er orðið mikið notað í fjármálageiranum, að við séum með mjög góðar og vel skilgreindar reglur hér inni og ég hlakka til að við setjum síðan lög um þetta í framhaldinu. Einnig er ánægjulegt að sjá að hér inni er verið að vinna líka í frjálsu flæði ópersónulega upplýsinga, en það er hluti af því sem gerir skýjaþjónusturnar mögulegar. Það hefur verið dálítið mikið vandamál með það hvar gögnin sitja en þarna er verið að segja að það skipti minna máli með ópersónulegu gögnin og það auðveldar þannig viðskipti þvert á landamæri. Mig langaði bara að nota tækifærið og nefna að það væri ánægjulegt að sjá þetta koma hingað inn.