stefna um stuðning Íslands við Úkraínu 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir fínar umræður hér í þinginu um þingmálið og sömuleiðis um stærra samhengi þingsályktunartillögunnar, það ástand í alþjóðamálum sem við stöndum frammi fyrir og hversu mikilvægt það er að við tökum til umræðu og grípum til aðgerða í samræmi við tilefnið, tökum til umræðu stöðuna í víðara samhengi vegna þess að það er auðvitað þannig að hér hafa orðið algjör vatnaskil. Það eru engir smáatburðir sem leiða af framferði Rússa undanfarin ár í raun og veru alveg frá innlimun Krímskagans. Það sjáum við ekki bara á því hversu mikill aukinn og nýr kraftur er kominn í samskipti við Bandaríkin á grundvelli varnarsamningsins. Við sjáum það á endurskipulagningu NATO og við sjáum það á fjölgun ríkja sem hafa nú gengið til liðs við NATO-ríkin og við sjáum það í alveg gríðarlegri aukningu í framlögum til varnarmála hjá allri Evrópu. Þetta er algjör viðsnúningur frá því sem áður var.
Fyrir ekki mörgum árum síðan var á vettvangi þjóðarleiðtoga, þegar þeir komu saman undir merkjum Atlantshafsbandalagsins, talsverð umræða og mikill þungi í þeirri umræðu um þörfina fyrir aukin varnarframlög. 2% viðmiðið var þá undirrót eða tilefni mikilla árása, verður maður að segja hreinlega, af hálfu þáverandi Bandaríkjaforseta á önnur NATO-ríki fyrir það að hafa ekki lagt jafn mikið til varnarmála eins og Bandaríkin höfðu gert fram að þeim tíma. Nú hefur Atlantshafsbandalagið breytt þessu viðmiði og þetta eru orðnar lágmarksfjárhæðir. Þegar við erum að tala um 2% af landsframleiðslu og þá breytingu sem hefur orðið í öllum Evrópuríkjum sem eiga aðild að NATO, þá erum við ekki að tala um lítil hagkerfi og þar af leiðandi erum við ekki að tala um neinar smáfjárhæðir. Þetta er meiri háttar breyting. Þetta finnur maður ekki bara þegar maður sækir fundi utanríkisráðherra eða eftir atvikum varnarmálaráðherra, heldur blasir þetta við öllum sem fylgjast eitthvað með stjórnmálaumræðunni á meginlandinu.
Þegar ég sótti fund um varnar- og öryggismál í München fyrir nokkrum vikum síðan þá kemst maður inn í hringiðu þessarar umræðu og ég verð að segja að það er bara hreinlega lífsreynsla að standa svona inni í miðri hringiðu þeirrar umræðu og finna fyrir því með svo áþreifanlegum hætti. Nú kom Zelenskí á þann fund og aðalritari Sameinuðu þjóðanna og yfir 100 ráðherrar frá mörgum ríkjum. Maður finnur fyrir því með áþreifanlegum hætti hversu gríðarlegur viðsnúningur hefur orðið á fáum árum. Ég vísaði hér aftur til ársins 2017. Nú er árið 2024, þetta er ekki langur tími, en frá innrás Rússa í Úkraínu er enn styttri tíma, miklu styttri tími heldur en til 2017 og það sem hefur gerst yfir þetta stutta tímabil, tiltölulega stutta tímabil svona í öllu sögulegu samhengi átaka í Evrópu, þá er bara hreinlega allt breytt.
Þess vegna er tilefni fyrir okkur hér að taka til umræðu undir sérstöku þingmáli þessa stöðu og ég þakka góðar undirtektir við ekki bara efnið heldur líka það form sem við efnum til með því að koma með þingsályktunartillögu. Við hefðum jú getað saumað þetta saman við væntanlega fjármálaáætlun og sýnt þar einhver áform ríkisstjórnarinnar um að til næstu ára væri hæfilegt að auka framlög til Úkraínu og viðhalda þeim í einhverri fjárhæð sem við hefðum þá gert grein fyrir í greinargerð. En mér fannst fara miklu betur á því að við kæmum hér með sjálfstætt þingmál sem myndi þá bæði lyfta málefninu sérstaklega og gæfi tilefni til sjálfstæðrar og sérstakrar umræðu og meðhöndlunar utanríkismálanefndar. Þá getum við á sama hátt sagt að þingið þurfi að halda taktinum og um leið og við afgreiðum þá tillögu verður vonandi hægt að uppfylla þau metnaðarfullu áform sem við erum með þar þegar fjármálaáætlun til næstu ára verður afgreidd. En eins og við vitum er áskorun að ná öllum markmiðum okkar í fjármálaáætluninni á sama tíma.
Hér hafa nokkrir fletir á þessu máli verið ræddir sérstaklega. Það hefur verið komið inn á tvíhliða samninga við Úkraínu og við vitum að það eru allnokkrir slíkir sem hafa verið að klárast að undanförnu. Ég veit til þess að Svíþjóð, Noregur og Finnland hafa hafið slíkar viðræður. Það hafa sjö ríki lokið slíkum viðræðum, þ.e. Bretland, Frakkland, Þýskaland, Kanada, Holland, Danmörk og Ítalía. Og fyrst maður nefnir Danmörku er mjög athyglisvert hve sterkur tónn heyrist frá Danmörku um þessar mundir vegna stríðsins. Þar hefur málið fengið mikið rými í þjóðþinginu og virðist vera mikill einhugur milli ekki bara stjórnarflokkanna í Danmörku heldur víðtækari stuðningur við þann málflutning á þjóðþinginu að koma með mjög metnaðarfull langtímaáform.
Hér hefur svo sem verið aðeins vikið að því hvers vegna við erum að hengja okkur eitthvað í það sem Norðurlöndin eru að gera, hvort það sé rétta viðmiðið, því hefur aðeins verið velt upp í umræðunni. Við erum einfaldlega að vísa til þess sem hvað myndarlegast er gert í þessum efnum. Það er eins og við þekkjum löng venja og hefð að máta sig aðeins við Norðurlöndin í ýmsu samhengi og það hefur legið fyrir að Norðurlöndin hafa haft þetta sem mikið áherslumál, allar ríkisstjórnir, og á sama tíma og Finnar og Svíar hafa gengið í Atlantshafsbandalagið hafa Norðmenn og Danir verið mjög öflugir stuðningsmenn Úkraínu undanfarin misseri og þess vegna ekki óeðlilegt að við horfðum til þess hvernig framlög okkar Íslendinga mátuðu sig við það sem væri að gerast á Norðurlöndunum. Þegar þessi áætlun var sett saman, þessi þingsályktunartillaga, kom til tals hvort við ættum að festa t.d. einhverja krónutölu sem við myndum þá hafa ígrundað í ljósi þess sem við höfum gert til þessa en um leið spurt okkur hvaða hlutfall af landsframleiðslu eða hvaða hlutfall af fjárlögum væri hæfilegt að setja í stuðning við Úkraínu í ljósi þess sem aðrir væru að gera. En mér fannst kannski fara betur á því að vera ekki með í þessari þingsályktunartillögu tiltekna krónutölu heldur horfa til þess að við gætum sagt að við værum engir eftirbátar þeirra sem væru að gera þetta mjög vel eins og á Norðurlöndunum. Þaðan er hugmyndin komin, að við horfum til þess sem Norðurlöndin eru að gera. Þetta er sem sagt viljayfirlýsing um að viðhalda stuðningi sem er áþekkur því sem Norðurlöndin eru að gera.
Ég ítreka það að Norðurlöndin hafa einmitt verið að leggja fram á þjóðþingum og afgreiða á undanförnum vikum og mánuðum, ég man síðast eftir því í Danmörku, áætlanir sem horfa til lengri tíma og í tengslum við tvíhliða samningana þá hafa þeir haldist í hendur við slíka samninga og við gerum þess vegna ráð fyrir því að geta farið að undirbúa slíkan tvíhliða samning af okkar hálfu.
Það hefur auðvitað verið nokkuð víða komið við í framsöguræðum. Ég vil leyfa mér samt að segja að maður skynjar nokkuð jákvæðan tón í garð þessa máls og ég býð fram allt liðsinni sem utanríkisráðuneytið getur veitt við meðferð málsins í utanríkismálanefnd og ítreka áfram vilja til að starfa þétt með nefndinni í þessu máli sem öðrum.