stefna um stuðning Íslands við Úkraínu 2024--2028.
Virðulegi forseti. Þetta er alveg gilt sjónarmið í þessum vangaveltum okkar, hvort við eigum að lágmarki að vera í meðaltalinu eða hvort við eigum að tryggja að við rekum aldrei lestina eða hvort við viljum vera í einhvers konar fararbroddi meðal þessara ríkja. Ég verð að halda því hér aðeins til haga að það verður alltaf gríðarleg áskorun fyrir okkur að elta Norðurlöndin í þessum beinu framlögum til varnartengdrar aðstoðar. Norðurlöndin eru að senda fjöldann allan af herþotum, skotfærum, eldflaugum eftir atvikum. Það er verið að útvega alveg gríðarlega dýran búnað sem að hluta til er í einhverjum tilvikum framleiddur á Norðurlöndunum. Hins vegar getum við alveg í þessu samhengi borið okkur saman við aðrar þjóðir þegar kemur að efnahags- og mannúðaraðstoð, það er ekki ósanngjarnt af okkur að geta borið okkur saman við aðrar þjóðir hvað það snertir. En þetta er alveg sjónarmið sem hv. þingmaður kemur með hér, að við ættum að sýna metnað til að vera að lágmarki í meðaltali. En það sem við vitum hins vegar er að þetta er stefnuskjal, tillaga til þingsályktunar, og endanleg ákvörðun verður alltaf tekin með fjárheimildum þar sem við hér á þinginu tökum síðar ákvörðun um umfangið, sjálfstæða ákvörðun. Við bindum engan með þessu til lengri tíma en þetta er stefnan. Þarna er viðmiðið markað og það skiptir máli að það sé alveg skýrt hver viljinn er.