154. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það var góður andi hér á þinginu í gær þegar hæstv. utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um stuðning Íslands við Úkraínu. Við þingmenn erum auðvitað meðvituð um brýna þörf Úkraínu. Þannig tóku nokkrir þingmenn undir orð hæstv. utanríkisráðherra um að við gerðum okkur grein fyrir því að innrás Rússlands í Úkraínu væri alvarlegasta ógnin við öryggi Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þetta eru mikilvæg skilaboð inn í innlenda umræðu. Það hefur nefnilega sprottið upp umræða hér, þó ekki hávær, þar sem spurningarmerki hefur verið sett við að stríðið í Úkraínu sé svo ofarlega á dagskrá íslenskra stjórnvalda og löggjafans. Við megum aldrei gleyma því að það er frumskylda stjórnvalda að vernda öryggi borgaranna. Því var líka fagnað af þingmönnum að tillaga hæstv. ráðherra væri sú að stuðningur við Úkraínu kæmi til viðbótar við önnur framlög til utanríkis-, varnar- og þróunarmála. Þörfin í þeim málaflokkum er enda brýn og þessir málaflokkar tengjast, eins og við þekkjum. Vegna aukins ófriðar víða um heim hefur til að mynda dregið úr fókus á Afríku, sem er það svæði heimsins þar sem staða íbúa er bágbornust, þótt það séu sannarlega gleymd svæði og gleymd stríð í Afríku. Það er þegar hafin umræða í nágrannaríkjum okkar um að draga úr þróunarsamvinnu í álfunni til að beina framlögum annað og vinir okkar, Finnar, hafa þegar tekið ákvörðun um þetta. Staðan í þróunarríkjum er hins vegar ekki bara siðferðilegt áhyggjuefni heldur beinlínis öryggismál fyrir önnur ríki.

Við í utanríkismálanefnd ræddum tillögu hæstv. utanríkisráðherra í dag. Ég vona að hún fái skjótan framgang í þinginu með fullum stuðningi og að við höldum áfram að sinna öðrum utanríkismálum og standa með því vörð um öryggi og fullveldi Íslands.