154. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Alþjóðlegi hamingjudagurinn er í dag, 20. mars. Það voru Sameinuðu þjóðirnar sem útnefndu þennan dag og hvetja þar með öll aðildarríki sín og stofnanir til að halda alþjóðlega hamingjudaginn hátíðlegan á viðeigandi hátt. Aðalmarkmiðið er að hvetja stjórnvöld til að leggja meiri áherslu á að auka hamingju þegna sinna og hafa velsæld að leiðarljósi.

Þingflokkur Vinstri grænna heimsótti alla framhaldsskóla landsins í kjördæmavikunni og dagana þar á eftir og þar komu m.a. fram áhyggjur af líðan nemenda í sumum skólunum, en sem betur fer ekki öllum. Nemendur í dreifbýlinu voru flest ánægð með þá þjónustu sem þeim stendur til boða varðandi aðgang að sálfræðingum og náms- og starfsráðgjöfum og reyndar almennt að starfsfólki og það er sannarlega vel. En þessa stöðu sem ungt fólk stendur frammi fyrir í dag þarf að rýna og finna leiðir til úrbóta og það er einmitt eitt af því sem rætt verður á málþingi í Háskóla Íslands í tilefni dagsins. Það verður áhugavert að kynna sér niðurstöður hamingjumælinga þar sem samanburður er gerður á milli landa og horft til kynja og aldurs.

Ísland stendur framarlega þegar kemur að því sem kallað hefur verið velsældarhagkerfi með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og hæstv. forsætisráðherra hefur lagt mikla áherslu á að ekki dugi að hér sé eingöngu miðað við hagvöxt þegar rætt er um stöðu samfélagsins. Hér hafa líka verið þróaðir mælikvarðar sem taka mið af uppbyggingu velsældarhagkerfisins og m.a. horft til geðheilbrigðis, aðgangs að menntun og húsnæði og almennt betri lífskjörum.

Ég hlakka svo sannarlega til að heyra af niðurstöðum þessa málþings sem fer fram núna þar sem leitað er svara við spurningum eins og: Hvað getum við gert til að njóta lífsins betur? Hvernig sköpum við samfélag þar sem velsæld fólks og jarðarinnar er í fyrirrúmi? Hvað veldur því að velsæld ungs fólks fer dvínandi og einmanaleiki eykst? Hvernig undirbúum við unga fólkið okkar sem berst fyrir framtíðina þannig að þau geti lifað hamingjusömu lífi og tekist á uppbyggilegan hátt við áskoranir, bæði í eigin lífi sem og í samfélaginu? Og svo munum við að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)