154. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram algert stefnuleysi stjórnvalda í baráttunni við fíknivandann. Stefnuleysið er gríðarlega alvarlegt vegna þess að það er að leiða af sér dauðsföll, algerlega óþörf dauðsföll sem reynsla annarra landa sýnir okkur mjög skýrt að hægt er að koma í veg fyrir. Nú hefur Árni Tómas Ragnarsson læknir sagt í fjölmiðlum að hann hafi verið með 50–60 manns í morfínlyfjaskömmtun hjá sér. Þetta er hópur fólks sem hefur verið með þungan ópíóíðavanda til langs tíma og reynt allt annað sem er í boði, afeitranir, vímuefnameðferðir og viðhaldsmeðferð með lyfinu Suboxone, en það hefur ekki skilað neinum árangri. Nú hefur hópurinn misst þessa lyfjaskömmtun og mér hefur verið tjáð að aðeins einn til tveir einstaklingar hafi leitað til SÁÁ og aðeins tveir hafi þegið viðhaldsmeðferð frá geðsviði Landspítalans. Allir hinir eru í þeirri stöðu að þurfa að fara inn á ólöglegan markað, kaupa sér morfín og fjármagna þá neyslu. Þetta er oftast gert með þjófnaði, innbrotum og kynlífsvinnu, með vændi. Þetta er hræðileg staða að setja fólk í.

Forseti. Í Sviss mættu stjórnvöld ópíóíðavandanum með gagnadrifinni nálgun og niðurstöðurnar voru stórkostlegar. Þeirra aðferðir felast í að afnema refsingar fyrir neyslu vímuefna, að afglæpavæða vörslu neysluskammta, að bjóða upp á 24 tíma aðgang að Methadone-meðferðum og, fyrir þá sem hefðbundin meðferð hefur ekki skilað neinum árangri, að bjóða upp á læknisfræðilega hreint heróín. Árangurinn af þessum aðgerðum var byltingarkenndur; veruleg fækkun dauðsfalla vegna ofskömmtunar, veruleg fækkun glæpa og tilfella HIV og lifrarbólgu, og fólk með alvarlegan vímuefnavanda sýndi miklar framfarir í félagslegri virkni og atvinnuþátttöku.

Forseti. Það er ekki skortur á lausnum eða úrræðum. Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Við þurfum bara stjórnvöld sem er raunverulega annt um að bjarga lífum og hafa hugrekki til að taka stefnu byggða á gögnum og mannúð og reynslu annarra þjóða í kringum okkur sem hafa tekið stefnu sem sýnt hefur árangur, sem virkar. (Forseti hringir.) Við getum gert það líka. Byggjum ekki stefnur á kreddum og einhverjum tilfinningum.