Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Forseti. Fyrst til að nefna það þá veit ég ekki til þess að þessari heimild um að beina tilmælum með þeim hætti sem hv. þingmaður nefnir hafi nokkru sinni verið beitt, en sannarlega er heimild til þess að gera það. Í mínum huga er hér verið að snúa hlutum á hvolf. Það er bankaráð sem hefur skýra skyldu til að upplýsa Bankasýsluna, bæði með vísan í almennar reglur, eigendastefnu og sérstakan samning þar á milli. Þar af leiðandi er ljóst að bankaráð átti að upplýsa Bankasýslu um það sem þarna var á ferðinni. Það að ég hafi heyrt orðróm um það, eins og margir aðrir, að Landsbankinn hefði áhuga á því að gera tilboð í félagið þá er þar um að ræða orðróm sem átti við um önnur félög líka. Og þegar slíkur orðrómur er á kreiki gera fyrirtæki og markaðurinn ekki formlega athugasemd við það. Ég leyfi mér stundum að hugsa: Hvernig hefði það horft við hv. þingmanni og öðrum ef ég, ólíkt því sem markaðurinn gerir þegar nákvæmlega sömu aðstæður eru undir, hefði með formlegum hætti gert athugasemdir við og kallað það fram hvort Landsbankinn myndi gera bindandi kauptilboð? Það er áhugavert að Landsbankinn sjálfur tilkynnti til Kauphallarinnar á sunnudeginum að komið væri á skuldbindandi tilboð í TM, jafnvel þótt þar séu engin hlutabréf undir sem geta haft áhrif, þ.e. á virði hlutabréfanna, heldur virðist að bankinn hafi litið svo á að þetta gæti jafnvel haft verðmyndandi áhrif á skuldabréfin. Það segir mér að það hefði verið undarlegt ef ég hefði með formlegum hætti gert athugasemdir við orðróm sem fyrirtæki á markaði gera ekki þegar hann er til staðar. Bankaráðið átti að upplýsa Bankasýsluna og Bankasýslan hefði þá verið í færum um að upplýsa mig, en fékk þetta aldrei formlega til sín og þar af leiðandi er erfitt að láta það fyrirkomulag sem við erum búin að binda í lög virka þegar því er ekki fylgt.